Tímarit lögfræðinga - 01.06.1958, Qupperneq 44
Kvaðst R. hafa rætt við það systkinanna, er hér átti hlul
að, um kostnaðarhlið þessarar ráðstöfunar og fengið þau
svör, að forstöðumaður elliheimilisins hefði gefið þær upp-
lýsingar, að gera mætti ráð fyrir, að bæjarfélagið myndi
greiða kostnaðinn. Við þetta tækifæri kvaðst R. hafa tekið
það fram, að hann myndi ekki ábyrgjast neinar skuldbind-
ingar, er af dvöl móður þeirra á elliheimilinu kynni að
leiða, þar sem liann hafi talið ráðstöfun þessa með öllu
óþarfa. I öðru lagi reisti R. sýknukröfu sína á því, að fjár-
hagur hans væri svo takmarkaður, að liann gæti af þeim
sökum ekki staðið undir kostnaði þeim, er af hælisvist
móður þeirra leiddi, enda hefði sá kostnaður verið miklu
meiri en orðið hefði, ef hún hefði dvalið áfram á heimil-
um þeirra svstkina til skiptis.
í 6. gr. framfærslulaga nr. 80/1947 er sú skylda lögð á
börn að ala önn fyrir foreldrum sínum, séu þau til þess
fær, að svo miklu leyti, sem lifeyrir samkv. lögum um
almannatryggingar og aðrar tekjur hrökkva ekki til. Hlut-
ur R. af dvalarkostnaði vegna móður hans nam að meðal-
tali kr. 160.00 á mánuði á því tveggja ára tímabili, sem
krafa elliheimilisins náði yfir. R. hafði ekki fært að því
rök, að honum væri um megn að greiða þenna hluta dval-
arkostnaðarins. Leitt var i ljós, að R. var fullkunnugt um
vistun móður sinnar á elliheimilið. Talið var, að hann
hefði mátt vita, að hinn lögboðni lifeyrir til hennar myndi
ekki hrökkva til að greiða fvrir dvöl hennar þar, svo að
liann hafi mátt gera ráð fyrir, að kostnaðurinn, sem fram-
vfir yrði, kynni að koma í hluta barna hennar, enda hefðu
þau fram til þessa tima séð í sameiningu um framfærslu
hennar. Þrátt fyrir allt þetta hafði R. látið vistun móður
sinnar á elliheimilið óátalda, svo og dvöl hennar þar. Þeg-
ar öll þessi atriði voru virt, þótti verða að líta svo á, að
R. væri meðábyrgur systkinum sínum um greiðslu kostn-
aðar af dvöl móður þeirra á elliheimilinu. Var því krafa
stefnanda í málinu tekin til greina að öllu leyti, enda hafði
90
Tímarit lögfrœöinga