Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Page 32
Frá
Lögfræðingafélagi
Islands
SKÝRSLA UM STÖRF
LÖGFRÆÐINGAFÉLAGSINS 1971—1972
Siðasta starfsár lögfræðingafélagsins var frá aðalfundi 20. desember 1971
til aðalfundar 14. desember 1972. Stjórnarmenn og aðrir sýslunarmenn fé-
lagsins þetta ár eru taldir upp í 1. hefti Tímarits lögfræðinga 1972. Nokkur
atriði úr skýrslu þeirri, sem lögð var fram á aðalfundinum í desember skulu
tekin hér upp:
1. Kjaramál
Kjaramálanefnd hélt tvo fundi á starfsárinu, annan með stjórn félagsins.
Yfir stendur endurskoðun á lögum um kjarasamninga opinberra starfs-
manna nr. 55/1962 og um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 38/1954.
Vonir standa til, að þessi endurskoðun muni leiða til verulegrar aðstöðu-
breytingar fyrir samtök háskólamanna að því er kjaramál varðar, en niður-
staða er ekki fengin. Gildandi kjarasamningar koma til endurskoðunar að því
er ríkisstarfsmenn varðar á árinu 1973, en ekki hefur þótt vera tilefni til veru-
legra átaka á síðasta starfsári á þessu sviði. Þörf er á að ræða viðhorf í kjara-
málum á félagsfundi á næstunni.
2. Félagsfundir
Almennir félagsfundir voru 5 á starfsárinu, allt fræðafundir. Umræðuefni,
fyrirlesarar og fundardagar voru sem hér segir:
Hjúskaparlögin (dr. Ármann Snævarr) 27. janúar.
Örorkumöt (Gunnar M. Guðmundsson hrl. og Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri) 22. febrúar.
Eignarréttur að almenningum (próf. Sig. Líndal) 21 .marz.
Endurkröfuréttur vátryggingarfélaga (próf. Arnljótur Björnsson) 27. apríl.
Res judicata (Magnús Thoroddsen borgardómari) 26. október.
Stjórnarfundir voru 13. Fundir í kjaramálanefnd voru tveir sem fyrr segir.
3. Tímarit lögfræðinga
Á árinu 1972 komu út tvö hefti af Tímariti lögfræðinga. Ritstjóri tímaritsins
er próf. Theodór B. Líndal. Afgreiðslumaður er Hilmar Norðfjörð.
26