Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Blaðsíða 36
5. Vandamál í sambandi við gildistöku skattlagabreytinga.
Fyrirlesari Guðmundur V. Jósefsson, gjaldheimtustjóri.
Guðmundur Skaftason hrl. hafði í samráði við Þór Vilhjálmsson formann
lögfræðingafélagsins samið dagskrá, og höfðu þeir jafnframt gert tillögur
um framsögumenn um hvert efni fyrir sig.
Umræðustjórar á námskeiðinu voru hæstaréttarlögmennirnir Jóhannes L.
L. Helgason og Eggert Kristjánsson. Var námskeiðið haldið í Lögbergi (húsi
lagadeildar). Um framkvæmd námskeiðsins sáu borgardómararnir Stefán M.
Stefánsson og Hrafn Bragason.
Þátttakendur voru milli 50 og 60 á námskeiðinu, en auk þess var það sótt
af þeim, er annazt höfðu einhverja vinnu við undirbúning þess.
Á eftir framsöguerindum urðu fjörugar umræður. Voru bornar fram fyrir-
spurnir og jafnframt gerðar athugasemdir við sumt það, er fram hafði komið
hjá fyrirlesurum.
Ákveðið er, að framsöguerindin verði öll birt í Tímariti lögfræðinga, og
munu þau fyrstu -Jtasi í þessu hefti.
Óhætt mun að segja, að námskeið þetta hafi þótt takast vel, og sýnir
fjöldi þátttakenda, að mikill áhugi er ríkjandi meðal lögfræðinga á námskeiða-
haldi sem þessu. Er það von stjórnar lögfræðingafélagsins, að ekki þurfi
lengi að biða næsta námskeiðs.
Hrafn Bragason
ÞRÍR FÉLAGSFUNDIR
Þrír félagsfundir hafa verið haldnir á þessu starfsári Lögfræðingafélagsins
eftir aðalfundinn 14. desember, sem frá er sagt á öðrum stað.
Á fræðafundi 18. janúar flutti Hjördís Hákonardóttir cand. jur. fyrirlestur,
sem hún nefndi: „Eru fóstureyðingar réttlætanlegar?" í umræðum að loknum
fyrirlestrinum tóku þátt auk framsögumanns: Garðar Gíslason skrifstofustjóri
borgardómaraembættisins, Hjörtur Torfason hrl„ Þór Vilhjálmsson prófessor
og Guðrún Erlendsdóttir hrl. Fundur þessi var á Hótel Sögu, Átthagasal, en
þar hafa flestir fundif félagsins verið um nokkurt skeið.
Á félagsfundi í Lögbergi 22. janúar var rætt um umsagnir um þrjú þingmál,
sem send höfðu verið félaginu til umsagnar. Fyrst var fjallað um þingsálykt-
unartillögu Ragnars Arnalds um útgáfu lagasafns í lausblaðabroti. Formaður
félagsins hafði framsögu um frumdrög að svari, og síðan tóku til máls Jóna-
tan Þórmundsson prófessor, Már Pétursson héraðsdómari, Bjarni K. Bjarna-
son borgardómari og Jón Thors deildarstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu. Var að lokum samþykkt að svara á þá leið, að félagið mæli með því, að
rækilega sé kannað fyrirkomulag á útgáfu lagasafns, svo að bætt verði úr
þeim erfiðleikum, sem koma fram, þegar langt líður milli útgáfa. Tekið skyldi
fram í svari félagsins, að í þessu sambandi komi til athugunar sá útgáfu-
háttur, sem um ræðir í þingsályktunartillögunni.
Þessu næst var á fundinum rætt um sijórnarfrumvarp um breyting á lög-
um nr. 57/1962 um Hæstarétt. Stefán Már Stefánsson borgardómari skýrði
fjölrituð drög að svari, sem félagsstjórnin lét dreifa á fundinum. Síðan tóku
30