Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Side 43
Ávíð
oú dreif
FRÁ AÐALFUNDI DÓMARAFÉLAGS ÍSLÁNDS
Dagana 9.—11. nóvember sl. var aðalfundur Dómarafélags islands hald-
inn í nýja Tollhúsinu í Reykjavík.
Formaður, Sigurgeir Jónsson bæjarfógeti, setti fundinn og stjórnaði hon-
um, en skipaði þá Andrés Valdimarsson sýslumann og Valgarð Kristjánsson
borgardómara fundarritara.
Fundurinn hófst með því, að formaður ávarpaði félaga og gesti, en meðal
þeirra voru við fundarsetninguna Ólafur Jóhannesson forsætis- og dóms-
málaráðherra og Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra. Þá minntist for-
maður Kristjáns Steingrímssonar fyrrverandi sýslumanns og bæjarfógeta, sem
látizt hafði á liðnu starfsári félagsins, og bað fundarmenn að votta honum
virðingu sína með bví að rísa úr sætum. Að því loknu greindi formaður frá
embættaskipunum á árinu, en þær voru sem hér segir:
Ármann Snævarr, hæstaréttardómari.
Ólafur St. Sigurðsson, héraðsdómari.
Freyr Ófeigsson, héraðsdómari.
Steingrímur Gautur Kristjánsson, héraðsdómari.
Már Pétursson, héraðsdómari.
Auður Þorbergsdóttir, borgardómari.
Hrafn Bragason, borgardómari.
Björn Þ. Guðmundsson, borgardómari.
Jón A. Ólafsson, sakadómari.
Björn Hermannsson, tollstjóri í Reykjavik.
Gísli G. ísleifsson, lögreglustjóri í Bolungarvík.
Björn Helgason, hæstaréttarritari.
Að loknum ávörpum ráðherranna Ólafs Jóhannessonar og Halldórs E. Sig-
urðssonar flutti formaður skýrslu um störf félagsstjórnar á liðnu starfsári.
Gat hann þess meðal annars, að Tryggingastofnun ríkisins hefði, eins og
forstjóri hennar hefði skýrt frá í hófi eftir síðasta aðalfund, fært félaginu kr.
100.000,00 að gjöf í virðingar- og þakklætisskyni í tilefni af 30 ára afmæli
félagsins, og hefði gjöfin verið lögð í utanfararsjóð. Þá gat formaður og þess,
að danska dómarasambandið hafi sent Dómarafélagi (slands boð um að taka
þátt í ársfundi félagsins 6. og 7. október sl., og hafi boðið verið þakkað og
árnaðaróskir sendar, en jafnframt tilkynnt, að Dómarafélag íslands gæti ekki
tekið þátt í fundinum. Enn fremur skýrði formaður frá því, að Torfi Hjartarson
37