Tímarit lögfræðinga - 01.03.1973, Qupperneq 46
Útgáfustarfsemi var enn sem fyrr all umfangsmikil. Að venju komu út
fjögur tölublöð af Úlfljóti, er höfðu að geyma margvíslegar greinar um lög-
fræðileg efni. Þar er einnig að finna greinargerðir um starfsemi Orators og
nýjungar í laganámi. Það var XXV. árgangur Úlfljóts, er út kom á sl. ári og
var alls 400 blaðsíður. Ljósprentun Úlfljóts var haldið áfram á starfsárinu og
lokið við endurprentun 7. og 8. árgangs. Sú endurprentun er 300 blaðsíður.
Stefnuvottaskrá var endurútgefin og send styrktariélögum Úlfljóts. Þá voru
gefin út fimm fréttabréf, þar sem greint var frá því helzta, sem á döfinni var
hverju sinni í félagsiífinu og kennslumálum. Loks var endurútgefin sérprentun
á samninga- og vátryggingalögum.
Hátíðisdagur Orators var að venju haldinn 16. febrúar. Árdegis sat bæjar-
þing Orators, en síðdegis flutti Sigurður Líndal prófessor erindi um réttar-
stöðu íslands 1264 til 1660, og laganemar sátu síðdegisdrykkju hjá Ólafi
Jóhannessyni dómsmálaráðherra. Að kveldi dags var haldin vegleg veizla og
stiginn dans. Þrír norrænir laganemar komu hingað til þess að taka þátt í
hátíðarhöldunum.
Orator hafði talsverð samskipti við erlenda lagastúdenta á síðasta ári.
Félagið hefur sem kunnugt er átt aðild að Norræna laganemaráðinu (NSJR)
síðan 1965. Ráðið gengst árlega fyrir tveimur formannaráðstefnum; sú fyrri
var haldin í apríl sl. í Ábo í Finnlandi. Síðari fundurinn var haldinn í Reykjavík
á vegum Orators. Alls komu til fundarins 15 norrænir laganemar auk íslenzku
fulltrúanna.
í júnímánuði sl. var XVIII. norræna laganemamótið haldið í Tyrventö í
Finnlandi. Tólf íslenzkir laganemar sóttu mótið. Auk þess sótti mótið Magnús
Thoroddsen borgardómari, sem flutti erindi, er nefndist: Beskyttelse af per-
soner som ikke har direkte ökonomisk fordel af sin stilling. Umræður á mót-
inu voru að verulegu leyti stjórnmálalegs eðlis; það heitir að ræða lögfræði í
þjóðfélagslegu samhengi!
Tveir bandarískir laganemar dvöldust hér í 10 daga í febrúar í boði laga-
deildar og Orators. í byrjun október fóru svo tveir íslenzkir laganemar íil
Bandaríkjanna og dvöldu þar í sex vikur við Ohio Northern University. Auk
þessa fóru fulltrúar Orators á Hoppeballet í Osló og Lillehammerseminarið,
sem norskir laganemar gangast að jafnaði fyrir í byrjun janúar ár hvert.
Kennslumál lagadeildar voru ofarlega á dagskrá sl. ár. Unnið var að því að
setja ýmsar nánari reglur um framkvæmd nýju reglugerðarinnar. Samþykkt-
ar voru reglur um sérstaka æfingaskyldu og í undirbúningi eru reglur um
námsvist á lögfræðistofum. Reglur um skilaskyldu raunhæfra verkefna voru
settar og felldar inn í reglur um æfingaskyldu.
Að venju voru farnar nokkrar kynnisferðir. M. a. fór síðari hluti í vísinda-
leiðangur til Vestmannaeyja, þar sem haldið var seminar um fljótvirka með-
ferð dómsmála undir stjórn Stefáns Más Stefánssonar borgardómara.
Á árinu fékk lagadeild til afnota nýtt hús, Lögberg. Orator hefur mjög gott
húsnæði til félagsstarfsemi í hinu nýja húsi auk geymslu fyrir Úlfljót. Lestrar-
aðstaða laganema hefur einnig batnað til mikilla muna; þeir hafa nú afnot af
84 sætum í Lögbergi, en höfðu áður 34 sæti að Aragötu 9. Enn er þó ósannað
hvort lestraráhuginn hafi aukizt að sama skapi og lestrarrýmið!
Þorsteinn Pálsson
40