Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Page 11

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Page 11
Gunnar G. Schram prófessor: NÝ LANDHELGISLÖGGJÖF Tilgangur þessarar greinar er að vekja athygli á nauðsyn þess, að sett verði heildarlöggjöf um ytri mörk yfirráðasvæðis íslenska ríkisins. Er þar átt við mörk hinnar almennu lögsögulandhelgi, mörk fiskveiði- lögsögunnar, mörk landgrunns og hafsbotnslögsögu og mörk mengunar- varnalögsögu. Jafnframt verði þar fjallað um eðli og umfang þeirra réttinda, sem íslenska ríkið fer með á þessum réttarsviðum. Ekki eru í lögum í dag fullnægjandi ákvæði um þessi mikilvægu réttarsvið, utan þess að um fiskveiðilögsöguna er fjallað í réglugei'ð. Er því þörf á því, að sett verði ljós og skýr lagaákvæði um hina al- mennu lögsögulandhelgi, ný lög um landgrunns- og hafsbotnssvæðið og loks um mengunarvarnalögsögu. I öðru lági sýnist hentugt, frá lagatæknilegu sjónarmiði, að um þessi atriði verði fjallað í einni lög- gjöf, þar sem réttarheimildir þessar lúta allar að hafinu umhverfis landið og ytri mörkum yfirráða Islendinga á þeim vettvangi. Er því æskilegt, að samin verði heildarlöggjöf um þessi réttarsvið og þar gerð fullnægjandi skil þeim réttindum, sem íslendingar telja sig eiga á haf- svæðinu umhverfis landið. Þótt þegar liggi fyrir ákvæðin um 200 sjó- mílna fiskveiðilögsöguna, skortir fyrirmæli um ýmis önnur veigamikil atriði, svo sem fyrr var getið, og ber að bæta úr því með nýjum og fullnægj andi lagaákvæðum. Nú er störfum þriðju hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna svo langt komið, að í stórum dráttum má gera sér grein fyrir því, hver þróunin muni verða varðandi yfirráðarétt rikja á hafinu undan strönd- um þeirra. Fyrir liggur, að almennt samkomulag er fengið á ráðstefn- unni um 200 sjómílna auðlindalögsögu strandríkisins (economic zone). Má segja, að sú lögsaga sé nú almennt viðurkennd í þjóðarétti, bæði vegna afstöðu ríkja í þessum efnum á ráðstefnunni og framkvæmdar 57

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.