Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Side 19
Mikilvægasta nýmælið þar er 200 sjómílna auðlindalögsaga strand-
ríkisins, þar sem því er veittur réttur til auðlinda hafsins og hafs-
botnsins út að þeim mörkum.
Spyrja mætti því ef til vill, hvort ekki væri nægilegt að bíða eftir,
að sá sáttmáli taki gildi, þar sem þá myndi vel fyrir þessum málum séð.
Á því er sá hængur, að enginn veit þegar þetta er skrifað hvort eða
hvenær endanlegt samkomulag þjóða næst um nýja skipan hafrétt-
armála. Þótt sáttmálinn nái samþykki, munu líða nokkur ár, þar til
tilskilinn fjöldi ríkja hefur fullgilt hann og hann fær gildi. Islensk
löggjöf um þessi atriði er þar að auki ótvírætt nauðsynleg, svo að
skapaðar verði innlendar réttarheimildir á þessu mikilvæga sviði,
hvað sem þjóðréttarsamþykktum líður. Á það ekki síst við um heim-
ildir íslenska ríkisins yfir landgrunns- og hafsbotnssvæðinu út að 200
sjómílunum og jafnvel lengra, og heimildir til mengunarvarna út að
þeim mörkum.
Er því niðurstaða þessara hugleiðinga sú, að fyllilega tímabært sé
að hefja undirbúning heildarlöggjafar um íslensku landhelgina —
auðlindalögsögu-löggj af ar.
Ritað í júlí 1978.
65