Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Page 41
Frá
Lögmaimafélagi
fslands
AÐALFUNDUR 1978
Stjórn Lögmannafélags islands 1977—1978, frá v.: Jón E. Ragnarsson hrl. (meðstjórnandi),
Gylfi Thorlacius hrl. (varaformaður), Guðjón Steingrimsson hrl. (formaður), Hjalti Steinþórsson
hdl. (ritari) og Hákon Árnason hrl. (gjaldkeri). (Ljósm.: Ljósm.st. Vigfúsar Sigurgeirssonar s/f).
Aðalfundur L.M.F.Í. var haldinn föstudaginn 31. mars s.l. að Hótel Loftleið-
um í Reykjavík.
Formaður félagsins Guðjón Steingrímsson hrl. setti fundinn, en fundarstjóri
var kjörinn Benedikt Blöndal hrl. og fundarritari Þorvaldur Einarsson hdl. For-
maður félagsins flutti skýrslu stjórnar vegna liðins starfsárs. í upphafi minntist
hann tveggja látinna félagsmanna, þeirra Lárusar Jóhannessonar hrl. og Sig-
urðar Guðjónssonar bæjarfógeta í Ólafsfirði, og vottuðu fundarmenn hinum
látnu virðingu með því að rísa úr sætum. Formaður rakti störf stjórnar og
nefnda félagsins, og kom fram, að 32 stjórnarfundir höfðu verið haldnir á árinu
og um 325 málsatriði bókuð. Sagði formaður, að sem fyrr hefði veruleg vinna
verið í það lögð að leysa ágreining á milli lögmanna og umbjóðenda þeirra,
87