Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Page 42
en gat þess jafnframt, að slíkum málum færi fækkandi. Þá hefði stjórn félags-
ins borist allmörg lagafrumvörp til umsagnar, og gerði formaður einkum grein
fyrir frumvarpi um hlutafélög og öðru um gjaldþrotaskipti. Formaður gat þess
einnig, að tveir almennir félagsfundir hefðu verið haldnir á árinu, annar um
félagsmál en hinn um frumvarp að gjaldþrotalögum. Sá fundur var sameigin-
legur með Dómarafélagi Reykjavíkur.
Við stjórnarkjör var Guðjón Steingrímsson hrl. endurkjörinn formaður fé-
lagsins, en meðstjórnendur til tveggja ára voru kjörnir Stefán Pálsson hdl. og
Skarphéðinn Þórisson hdl. í stað þeirra Gylfa Thorlacius hrl. og Hjalta Stein-
þórssonar hdl., sem gengu úr stjórninni samkvæmt félagslögum. Áfram sitja í
stjórninni til næsta aðalfundar þeir Hákon Árnason hrl. og Jón E. Ragnarsson
hrl. Varamenn voru kjörnir til eins árs þeir Helgi V. Jónsson hrl., Ólafur Axels-
son hdl. og Jón Magnússon hdl. Endurskoðendur voru kjörnir Ragnar Ólafsson
hrl. og Þorsteinn Júlíusson hrl. Gjaldskrárnefnd var endurkjörin, en í henni eiga
sæti Gunnar Sæmundsson hdl., Jón Ólafsson hrl. og Skúli Pálmason hrl.
Samþykkt var að hækka árgjald félagsmanna í kr. 30.000 og að félags-
menn 70 ára og eldri greiði ekki árgjald. Þá var samþykkt að hækka mála-
gjöld í kr. 1.200.
Nokkrar umræður urðu um félagsmálefni, og má nefna, að Hákon Árnason
hrl. gerði grein fyrir tillögum að nýjum siðareglum Lögmannafélags Islands.
Gætti þar ýmissa markverðra nýmæla.
Að kvöldi aðalfundardags var árshátíð félagsins haldin í Lækjarhvammi við
Hagatorg í Reykjavík. Var hátíðin fjölmenn og fór hið besta fram.
Skrifstofa félagsins er sem fyrr að Óðinsgötu 4 undir stjórn Arnbjargar
Guðbjörnsdóttur.
Stefán Pálsson, hdl.
ritari L.M.F.I.
88