Tímarit lögfræðinga - 01.08.1978, Síða 50
Ráðstefna AMNESTY INTERNATIONAL um afnám dauðarefsingar
STOKKHÓLMSYFIRLÝSINGIN 11. DESEMBER 1977
Stokkhólmsráðstefnan um afnám dauðarefsingar, setin af rúmlega 200
kjörnum fulltrúum og öðrum þátttakendum frá Asíu, Afríku, Evrópu, Mið-
austurlöndum, Norður- og Suður-Ameríku og ríkjum í Karabíska hafinu
Minnir á að:
— Dauðarefsing er sú tegund refsinga, þar sem grimmd, mannúðarleysi
og niðurlæging ná lengst og sviptir manninn rétti sínum til lífsins.
Hefur hugfast að:
— Dauðarefsingu er iðulega beitt til að bæla niður hvers konar andstöðu,
kynþátta-, þjóðmenningar-, trúarbragða- og réttindaskertra hópa.
— Aftaka er ofbeldisverknaður og ofbeldi egnir gjarnast til ofbeldis.
— Ákvörðun um dauðarefsingu og framkvæmd hennar er grimmileg öllum,
sem hlut eiga að máli.
— Aldrei hefur verið sýnt fram á, að dauðarefsing hafi nein sérstök fyrir-
byggjandi áhrif.
— Dauðarefsing kemur í vaxandi mæli fram í því, að menn hverfa sporlaust, I
aftökum án dóms og laga og pólitískum morðum.
— Líflát er óafturkallanlegt og getur bitnað á saklausum.
Staðhæfir að:
— Það er undantekningarlaus skylda hvers ríkis að vernda líf allra manna
innan lögsögu sinnar.
— Aftökur með pólitíska þvingun að markmiði eru jafn óviðunandi, hvort
sem þeim er beitt af stjórnvöldum eða öðrum.
— Afnám dauðarefsingar er nauðsynlegt til að ná yfirlýstum alþjóðlegum
markmiðum.
Lýsir yfir:
— Algjörri og skilyrðislausri andstöðu sinni við dauðarefsingu.
— Fordæmingu sinni á öllum aftökum í hvaða mynd sem þær eru fram-
kvæmdar eða látnar viðgangast af yfirvöldum.
— Skuldbindingu sinni til að vinna að algjöru afnámi dauðarefsingar.
Skorar á:
— Félagasamtök óháð stjórnvöldum, innlend sem alþjóðleg, að vinna saman
og hvert í sinu lagi að því að láta almenningi í té upplýsingar varðandi
afnám dauðarefsingar.
— Allar ríkisstjórnir að afnema dauðarefsingu algerlega og umsvifalaust.
— Sameinuðu þjóðirnar að lýsa því ótvírætt yfir, að dauðarefsing sé and-
stæð alþjóðalögum.
96