Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 5
t
BIRGIR ÁSGEIRSSON
Birgir Ásgeirsson, lögfræðingur, andaðist í
Landspítalanum hinn 14. ágúst 1984. Hann hafði
um nokkurt skeið kennt sjúkdóms þess, er dró
hann til dauða, en stundaði þó öll störf á skrif-
stofu sinni af mikilli elju og kostgæfni milli
þess sem hann þurfti að dveljast á sjúkrahúsi.
Þar lést hann eftir skamma legu.
Birgir fæddist í Reykjavík 2. maí 1929. For-
eldrar hans voru hjónin Karolína Sveinsdóttir
og Ásgeir Ásgeirsson frá Fróðá, er um áratuga
skeið var skrifstofustjóri Vegamálastjórnarinn-
ar.
Birgir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1947 og lagaprófi frá Háskóla
íslands árið 1954. Að námi loknu starfaði hann
sem fulltrúi hjá nokkrum lögfræðiskrifstofum
hér í borginni. Lögfræðingur Neytendasamtakanna var hann 1954-1969 og
lögfræðingur Húseigendafélags Reykjavíkur 1960-1961; héraðsdómslögmað-
ur 1959. Árið 1958 gerðist hann fastur starfsmaður hjá Reykjavíkurborg og
var innheimtustjóri borgarinnnar 1966-1972. í ársbyrjun 1973 stofnaði hann
eigið fyrirtæki hér í borginni, Aðalfasteignasöluna og Aðalskipasöluna, sem
hann rak til dauðadags.
Birgir kvæntist Margréti Sigurjónsdóttur, sem reyndist honum traustur lífs-
förunautur. Þeim hjónum varð ekki barna auðið.
Eins og áður er sagt, var Birgir lögfræðilegur ráðunautur Neytendasamtak-
anna árin 1954-1969, eða um 15 ára skeið. Voru þessi samtök þá á bernsku-
skeiði og áttu oft við ýmsa erfiðleika að stríða. Reyndist Birgir þeim hollur og
ötull ráðgjafi og lagði sig í framkróka um að efla þau. Fóru þessi störf Birgi
vel úr hendi en þau vann hann jafnframt öðrum föstum störfum sínum. Hafa
kunnugir talið að Birgir hafi á þessum árum veitt félaginu mikla aðstoð við
að koma því yfir örðugasta byrjunarhjallann.
Hjá Reykjavíkurborg vann Birgir um árabil við fjármála- og lögfræðistörf í
skrifstofu framfærslumála meðan sú skrifstofa var til húsa I „Hótel Heklu“ við
Lækjartorg. Um sex ára skeið var hann innheimtustjóri í Borgarskrifstofunum
í Austurstræti. Honum fórust þessi störf vel úr hendi. Hann var nákvæmur,
velvirkur og laginn samningamaður.
Birgir var glæsilegur maður, hár vexti og svaraði sér vel. Hann var bjartur
yfirlitum, stilltur vel, snyrtimenni og gamansamur, þegar það átti við. Hann
var vinsæll og vel látinn meðal starfsmanna sinna og góður félagsmaður. Allir
sem kynntust honum vel eiga um hann góðar minningar.
Gunnlaugur Pétursson og
Hjörtur Hjartarson
75