Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 24
heimild til að framselja höfundarrétt sinn og slíkt framsal leiðir oft af
starfsstöðu eða starfssamningi, enda þótt hvergi hafi berum orðum
verið á framsal höfundarréttar minnst.
1 8. gr. höfl. eru reglur, er m.a. varða sönnun fyrir því, hver sé höf-
undur verks, sbr. hrd. 53.1124.
5.2. Höfundarréttindi samhöfunda.
7. gr. höfl. fjallar um höfundarréttindi samhöfunda. Þar segir, að
tveir eða fleiri höfundar að sama verki eigi saman höfundarrétt að
því, ef framlög þeirra verði ekki aðgreind hvert frá öðru sem sjálfstæð
verk. Samkvæmt því er tvennt, sem einkennir sameiginlegt verk. í
fyrsta lagi er um að ræða verk, sem er skapað í samvinnu höfunda. 1
öðru lagi verður verkið að vera þannig vaxið, að framlag hvers höf-
undar um sig verði eigi aðgreint sem stjálfstætt verk. Þar ber eigi
að líta eingöngu til þess, hvort framlag það, er greina á frá, geti stað-
ið sem sjálfstætt verk eftir aðgreininguna, heldur og hver áhrif að-
greiningin hafi á framlag það, sem eftir stendur. Geti síðastgreint
framlag ekki talist sjálfstætt verk eftir aðgreininguna, er um sam-
eiginlegt verk að ræða í skilningi 7. gr.
7. gr. höfl. kveður svo á, að höfundar sameiginlegs verks eigi saman
höfundarrétt, en ekki er nánar útskýrt, hvað í því felist. 1 greinargerð
fyrir frumv. til höfl. er tekið fram, að um slíka sameign sé það
almenn regla, að til umráða og ráðstöfunar á verki þurfi sam-
þykki allra samhöfunda. Þó megi vera, að synjun um fjárhagsleg not
þyki svo rakalaus, að hún eigi ekki rétt á sér. Ennfremur er tekið
fram í greinargerð, að brot á höfundarréttindum geti hver samhöf-
undur átalið sjálfstætt. (Sjá Alþt. 1971, A-deild, bls. 1283).
Samkvæmt framansögðu er ljóst, að 7. gr. höfl. gengur út frá til-
teknum grundvallarreglum um höfundarréttindi samhöfunda. Taka
þessar reglur af skarið í veigamiklum atriðum, að því er þá sameign
varðar. Þegar þessum reglum sleppir, koma almennar reglur um sam-
eign til álita, en jafnan verður þó að taka tillit til sérsjónarmiða höf-
undaréttar.
5.3. Samsett verk.
Undir samsett verk falla verk tveggja höfunda eða fleiri, ef verkin
verða aðgreind, gagnstætt því, sem gildir um sameiginleg verk, sbr.
5.2. hér að framan. Hver höfundur á þá sjálfstæðan höfundarrétt að
sínu verki. Höfl. geyma ekki ákvæði um samsett verk. Til nýtingar
samsetta verksins sem slíks þarf samþykki höfunda þeirra sjálfstæðu
94