Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 37
Framangreind ákvæði 1. málsgr. 22. gr. ná einnig til umræðna um
málefni, sem varða almenna hagsmuni og fram fara á samkomum,
sem almenningur á aðgang að, eða í útvarpi, sbr. 2. málsgr. 22. gr.
Höfundur hefur einkarétt til að gefa út safn af eigin framlagi til
umræðna, sem 22. gr. tekur til, og af gögnum, sem hann hefur lagt
þar fram, sbr. 3. málsgr. 22. gr.
7.15. Afnotakvöð í þágu flutnings í útvarpi samkv. 23. gr. höfl.
23. gr. höfl. geymir afnotakvöð í þágu útvarpsflutnings, að því er
varðar bókmenntaverk og tónverk. Hafi stéttarfélag eða stéttarsam-
band höfunda fengið almenna aðild eða umboð um flutningsrétt á bók-
menntaverkum eða tónverkum eða sérstökum greinum þeirra og
menntamálaráðherra sett reglur um það efni, skal heimilt án sérstaks
leyfis höfundar hverju sinni að flytja í útvarpi einstök kvæði, smá-
sögur og ritgerðir eða kafla úr stærri verkum og einstök lög og tón-
verk, ef smá eru, og kafla úr stærri tónverkum, enda sé fullnægt
skilyrðum um greiðslu til höfundar. Sé höfundur ekki í stéttarfélagi,
nýtur hann þó sama réttar sem áskilinn er í hinum almennu réglum,
en hvorki meiri né minni, sbr. 1. málsgr. 23. gr. höfl.
Skilyrði fyrir ofangreindri afnotakvöð eru þrenns konar, að verkið
hafi verið gefið út, að ekki sé um leiksviðsverk að ræða og að höf-
undur hafi ekki lagt bann við útvarpsflutningi verksins.
Skýra verður ákvæði 23. gr. svo, að einungis eitt stéttarfélag geti
talist hafa almenna aðild eða umboð höfunda í hverri grein, en að
því séu út af fyrir sig ekki skorður settar, hve þröngt grein er ákveð-
in, ef afmörkun frá öðrum greinum er nægilega skýr.
Reglur hafa verið settar um það efni, sem 23. gr. fjallar um, sbr.
nú reglugerð nr. 3/1976 um flutningsrétt á ritverkum og tónsmíðum.
Sapikvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar eru stéttarfélög eða stétt-
arsambönd höfunda, sem öðlast hafa löggildingu menntamálaráðu-
neytisins, í fyrirsvari við Ríkisútvarpið um endurgjald fyrir afnot
verka samkvæmt 23. gr. Takist ekki samningar, geta aðilar, ef þeir eru
sammála um það, lagt ágreininginn undir sérstakan gerðardóm, sbr.
2. málsgr. 57. gr. höfl. og reglur nr. 800/1982 um gerðardóm skv. 57.
gr. höfundalaga nr. 73/1972. Nefndum samtökum er og heimilt sam-
kvæmt 3. gr. reglugerðarinnar að setja gjaldskrá um flutning verka
utan Ríkisútvarpsins. Slík gjaldskrá er háð samþykki menntamála-
ráðuneytisins.
Tvenn samtök höfunda hafa fengið löggildingu menntamálaráðu-
neytisins samkvæmt ofangreindum reglum, Samband tónskálda og
107