Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 33
Þó er tekið fram í 3. málsgr. 14. gr., að höfundur eigi rétt til þókn-
unar, ef birtar séu myndir eða teikningar af tveimur verkum eða fleiri
hins sama höfundar í sambandi við meginmál, sem lýtur að almennri
kynningu.
Samkvæmt framansögðu setur 14. gr. þrjú skilyrði fyrir tilvitnun
í vernduð verk, þ.e. að um viðurkenndan tilgang sé að ræða, að til-
vitnun sé innan hæfilegra marka og að rétt sem með efni farið.
I 1. málsgr. 14. gr. eru tekin dæmi um viðui’kenndan eða réttmætan
tilgang tilvitnunar, þ.e. vísindi, gagnrýni og almenn kynning. Svo
sem ráðið verður af orðalaginu, er þessi talning ekki tæmandi. Við
úrlausn þess, hvort tilvitnun þjóni réttmætu markmiði, er rétt að hafa
hliðsjón af venjum í þeim efnum, eftir atvikum venjum á tilteknum
sviðum.
14. gr. geymir ekki aðrar reglur varðandi umfang tilvitnunar en
þá, að hún verði að vera innan hæfilegra marka. Skiptir þar mestu,
hvað telja megi nauðsynlegt vegna þess markmiðs, sem um er að ræða.
Einnig hér er rétt að líta til venja á tilteknum sviðum, ef þeim er
til að dreifa.
7.5. Takmarkanir í þágu fréttaþjónustu fjölmiðla.
1 15. gr. höfl. er fjölmiðlum heimiluð viss not verka vegna frásagna
af dægurviðburðum svo og endurbirting dægurgreina um þjóðmál.
7.5.1. Dægurgreinar um hagfræðileg efni, stjórnmál eða trúmál.
Heimilt er fjölmiðlum (blöðum, tímaritum og útvarpi) að endur-
birta dægurgreinar um hagfræðileg efni, stjórnmál og trúmál úr blöð-
um eða tímaritum svo og útvarpsefni af sama tagi, nema þess hafi
verið getið við greinina eða í útvarpssendingu, að slík endurbirting
væri bönnuð. Við endurbirtingu skal jafnan vitna til heimildar, sbr. 1.
málsgr. 15. gr.
7.5.2. Myndir og teikningar af birtum listaverkum.
Samkv. 2. málsgr. 15. gr. má birta í fjölmiðlum (blöðum, tímarit-
um, sjónvarpi og kvikmyndum) myndir eða teikningar af birtum lista-
verkum í sambandi við frásögn af dægurviðburðum. Þessi heimild nær
þó ekki til verka, sem gerð hafa verið i þeim tilgangi að birta þau með
þessum hætti.
7.5.3. Flutningur og sýning verks er þáttur í dægurviðburði.
Þegar flutningur eða sýning verks er þáttur í dægurviðburði, sem
kynntur er almenningi í útvarpi eða kvikmynd, er heimilt að láta ein-
103