Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 27

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 27
kvarða. Mestu máli skiptir, hvort raskað hefur verið aðalefni, boð- skap, listgildi, meginskipan eða heildarsvip verks. Slíkar skerðing- ar geta bitnað á verki höfundar með ýmsum hætti, t.d. við breytingu á eintaki verks, við eintakagerð, við aðlögun verks, við flutning verks o. s. frv. Að því er varðar breytingar á eintaki verks, þá reynir helst á um- ræddar reglur við breytingar á myndlistarverkum, einkum við breyt- ingar á frumverkinu sjálfu, og við breytingar á byggingarlist. Þess ber að gæta, að eigendur mannvirkja, sem njóta verndar sem bygg- ingarlist, og muna, sem verndaðir eru sem nytjalist, hafa rúma heim- ild til breytinga, sbr. 13. gr. höfl. Eyðilegging eintaka af verki fer almennt ekki í bága við sæmdarrétt höfundar. Aðlögun verks felur óhjákvæmilega í sér breytingu á frumverk- inu. Ef höfundur verks hefur á annað borð heimilað aðlögun þess í einhverju tilliti, verður hann að sætta sig við breytingar, sem eru eðlileg afleiðing breyttrar gerðar. Hér sem endranær verður að hyggja að þeim samningum, sem höfundur hefur gert og varða verk hans. Þótt engar breytingar hafi verið gerðar á verki sem slíku, kunna aðstæður við birtingu þess að vera þær, að höfundarheiður sé skertur. Er slík meðferð verks einnig óheimil. 6.2. Fjárhagsleg réttindi höfundar. Sjá greinargerð með frv. til höfl., sbr. Alþt. 1971, A-deild, bls. 1277 og 1278-1280, Bernitz o.fl.: Immaterialratt, bls. 35-45, Olsson: Copyright, bls 27-32, Weincke: Ophavsret, bls. 52-59, Bergström: Larobok i npphovsratt, bls. 22-24 og 28-31, Karnell: Upphovsrattslig offentlighet och framföranderatt í NIR 1973, bls. 266 o.áfr., og Videogramspridning och upphovsratt í NIR 1982, bls. 276 o.áfr. 1 1. gr. höfl. segir, að höfundur eigi „eignarrétt“ á verki sínu. Sam- kvæmt greinargerð með frumv. til höfl. leiðir af þessu ákvæði, að höfundur njóti þeirra umráðaheimilda, sem almennt fylgi eignar- rétti, og er þar hafður í huga eignarréttur að líkamlegum hlut. Þrátt fyrir þetta almenna ákvæði sé þó rétt að hafa í lögunum sérstakt ákvæði um rétt höfundar til eintakagerðar og birtingar, sbr. 3. gr., enda sé þar um aðalinntak höfundarréttar að ræða, sbr. nánar Alþt. 1971, A-deild, bls. 1280. Samkvæmt framansögðu láta íslensku höfl. ekki við það sitja, að höfundum sé veittur réttur til eintakagerðar og birtingar, heldur setja fram þá grundvallarreglu, að höfundur hafi einkarétt til hvers konar nota og ráðstöfunar verks síns. Við nánari skýringu þessarar víðtæku meginreglu geta ýmis álitamál risið. Heimildir höfundar til fjárhágslegrar nýtingar verks má flokka 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.