Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Side 43

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Side 43
til handa þeim, sem misgert er við. Eftir því sem við á, er upptakan gegn endurgjaldi eða án þess. í stað upptöku hafa dómstólar heimild til að ákveða, að munir séu ónýttir eða gerðir óhæfir til ólöglegra nota, sbr. nánar 55. gr. höfl. 9.3. Fébætur. 1 1. málsgr. 56. gr. höfl. er tekið fram, að um bætur fyrir fjártjón vegna saknæms brots á höfl. fari eftir almennum reglum. Er ljóst, að bótaskilyrði eru rýmri en refiskilyrði, þar sem brot telst saknæmt, ef gáleysi liggur fyrir, þótt eigi sé það stórfellt. Samkv. 2. málsgr. 56. gr., sbr. 7. gr. laga nr. 78/1984, skal dæma miskabætur úr hendi þess, sem raskað hefur rétti höfundar með ólög- mætri háttsemi. Ef um miska er að ræða, á höfundur því fortakslaust bótarétt, en fyrir gildistöku laga nr. 78/1984 var aðeins heimild til að dæma slíkar bætur. Þá hafa bótaskilyrði verið rýmkuð miðað við það, sem áður var, en þá var því aðeins heimild til að dæma miska- bætur, að um refsiverða háttsemi væri að ræða. Sjá hér hrd. 50.1358. 1 3. málsgr. 56. gr. er sérstæð bótaregla, eins konar auðgunan-egla. Segir þar, að heimilt sé að dæma þeim, sem misgert er við, bætur úr hendi þess, sem réttarröskun olli, þótt hann hafi gert það í grand- leysi. Ekki mega bætur þó nema hærri fjárhæð en ávinningi hans af brotinu. 10.0. RÉTTARFAR. Brot á höfl. sæta opinberri ákæru að kröfu þess, sem misgert er við, nema mikilvægir almannahagsmunir krefjist málshöfðunar, sbr. 1. málsgr. 59. gr. höfl., svo sem því ákvæði var breytt með 8. gr. laga nr. 78/1984. Ekki er fortakslaust skylt að höfða mál, þótt krafa komi um það frá réttum aðila. Handhafi ákæruvalds hefur hér svigrúm til ákyörðunar í samræmi við almennar reglur. Hins vegar er gengið út frá því, að alvarleg og meiri háttar brot sæti jafnan opinberri ákæru. Tekið er fram í 1. málsgr. 59. gr., að málshöfðun skuli jafnan heimil þeim, sem misgert er við. Ef ekki verður af opinberri ákæru, getur höfundur því höfðað mál sjálfur og sömuleiðis, ef opinbert mál fellur niður. í 2. málsgr. 59. gr., sbr. 8. gr. laga nr. 78/1984, er tekið fram, hverjir fari með fyrirsvar út af brotum á höfundarrétti, að höfundi látnum. Um frest til höfðunar refsimáls á grundvelli 54. og 59. gr. höfl. ber að beita 29. gr. almennra hegningarlaga, sbr. hrd. 50.1358. 113

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.