Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 58
Frá
Lögmannafélagi
íslanfls
UM STARFSEMI LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
STARFSÁRIÐ 1984-1985
Aðalfundur L.M.F.Í. var haldinn 29. mars s.l. Formaður, Jón Steinar Gunn-
laugsson hrl., minntist í upphafi látinna félagsmanna, þeirra Birgis Ásgeirsson-
ar hdl., Einars Viðars hrl., Héðins Finnbogasonar hdl., Kristjáns Eiríkssonar
hrl. og Þórhalls Sæmundssonar hrl. Fundarmenn risu úr sætum til að votta
hinum látnu félögum virðingu sína.
Á starfsárinu voru haldnir félagsfundir sem hér segir: Hinn 28. sept. stóð
félagið fyrir fundi um Mannréttindasáttmála Evrópu í Átthagasal Hótel Sögu.
Fyrirlesarar voru fjórir, þar af þrír erlendir lögfræðingar, starfsmenn Evrópu-
ráðsins. 5. okt. var haldinn hádegisverðarfundur í Þingholti. Formaður hafði
þar framsögu um hugsanlegar breytingar á auglýsingareglum í Codex Ethicus.
23. nóv. var haldinn hádegisverðarfundur í Þingholti. Stefán Már Stefánsson,
prófessor, hafði þar framsögu um „Nýjar hugmyndir um meðferð gerðardóms-
mála“. Enn var haldinn hádegisverðarfundur í Þingholti 14. des. Benedikt
Blöndal hrl. ræddi almennt um störf lögmanna. Hinn 24. jan. var haldinn fé-
lagsfundur í húsakynnum félagsins að Álftamýri 9. Stefán Pálsson hrl. hafði
framsögu um gjaldskrármál. 14. febrúar var haldinn félagsfundur að Álftamýri
9. Fundarefni var „Skiptastjórn í þrotabúum“. Frummælendur voru Ragnar H.
Hall, borgarfógeti, og Eiríkur Tómasson hrl.
Félaginu bárust 14 erindi, þar sem stjórnin var beðin umsagnar um leyfis-
umsóknir til málflutnings fyrir héraðsdómi. Stjórnin mælti með 10 umsóknum
og ákvað að mæla ekki gegn 4 umsóknum, en þar var um að ræða lögfræð-
inga í opinberu starfi, sem ber að afhenda dómsmálaráðuneytinu málflutn-
ingsleyfi sín meðan þeir gegna því.
Nýir félagar Lögmannafélagsins, sem bæst hafa við frá aðalfundi 1984, voru
23 þar af 13 sem leyst hafa til sín eldri réttindi til málflutnings fyrir héraðs-
dómi og hafið lögmannsstörf.
Frá aðalfundi 1984 fengu 4 héraðsdómslögmenn réttindi til málflutnings
fyrir Hæstarétti. Af félagaskrá féllu 13, þar af létust 5, eins og áður greinir,
en flestir hinna voru að eigin ósk teknir af félagaskrá, enda stunda þeir eng-
in lögmannsstörf.
Félagar eru nú alls 275, eða 10 fleiri en á aðalfundi 1984. Héraðsdómslög-
menn eru 162 og hæstaréttarlögmenn 112. Þá er einn félagsmaður lögfræð-
ingur án lögmannsréttinda. Heiðursfélagi er Rannveig Þorsteinsdóttir hrl. 13
félagsmenn eru 70 ára og eldri og eru þeir lausir undan skyldu til greiðslu
árgjalda.
128