Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Page 59

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Page 59
Talið frá vinstri: Eiríkur Tómasson gjaldkeri, Páll A. Pálsson varaformaður, Jón Steinar Gunnlaugsson formaður, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ritari, Björg- vin Þorsteinsson meðstjórnandi, Hafþór Ingi Jónsson framkvæmdastjóri. Stjórnarfundir voru haldnir reglulega hvern miðvikudag nema yfir hásumarið og um stórhátíðir. Alls voru haldnir 39 stjórnarfundir og 235 málsatriði bókuð. Eins og venjulega fór mikill hluti af starfstíma stjórnarinnar í afgreiðslu ým- iss konar kæru- og ágreiningsmála, er fyrir hana voru lögð. Alls bárust 25 slík mál frá aðalfundi 1984, eða 14 færri en árið á undan. Þessi mál voru mis- jafnlega umfangsmikil, en afgreiðsla þeirra var með þeim hætti, að úrskurðir voru kveðnir upp í 2 málum, 1 mál var afgreitt með álitsgerð, 2 mál voru aft- urkölluð, 1 máli lauk með sátt, 1 máli var vísað frá, 17 voru felld niður og 1 máli var ólokið. Hvorugur úrskurður stjórnarinnar var kærður til Hæstaréttar. Dagana 5. og 6. sept. s.l. héldu stjórnir lögmannafélaga á Norðurlöndum furid í Reykjavík, en slíkir fundir eru haldnir annað hvert ár til skiptis í lönd- unúm fimm. Hefur L.M.F.Í. tekið þátt í þessu norræna samstarfi lögmannafé- laga frá 1959. Snemma sumars 1984 barst L.M.F.Í. boð frá bandaríska lögmannafélaginu (American Bar Association — ABA) um að formaður og framkvæmdastjóri kæmu á ársfund félagsins í Chicago, sem haldinn var síðar um sumarið. Til- drög boðsins voru þau að á ársfundi félagsins 1983 var samþykkt að beita sér fyrir því að efla alþjóðlegt samstarf lögmanna. Var síðan með hliðsjón af þessari samþykkt ákveðið að bjóða fulltrúum lögmanna frá um 40 ríkjum úr öllum heimshornum á ársfund félagsins 1984. Hvorki formaður né fram- kvæmdastjóri gátu þekkst þetta ágæta boð, en Páll A. Pálsson hrl., vara- formaður L.M.F.f., sótti fundinn af hálfu L.M.F.I. Fréttabréf félagsins kom út 5 sinnum á starfsárinu. Birtast þar m.a. úr- skurðir og álitsgerðir stjórnarinnar, sem talið er að hafi almennt gildi fyrir 129

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.