Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Qupperneq 23

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Qupperneq 23
undar ekki alltaf staðið utan við umræðu um eigin verk, þar um man ég raunar varla dæmi, en mér finnst ekki við eiga, að þeir eigi hlut að umræðunni. Ég lít svo á, að svipað eigi við um dómara, þeirra verk liggur fyrir eins og þeir vilja og kunna að ganga frá því eins og aðstæður eru, og eftir það eiga þeir ekki að ganga fram og skýra það eða verja. Tökum nú upp annan þráð. Hugsum okkur að það sé þrátt fyrir það sem sagt var til gagns fyrir allan almenning að dómarar skýri verk sín í opinberri umræðu, til að umræðan sé tæmandi. Hugsum okkur líka að umræðan fari fram í íslensku þjóðfélagi ársins 1992 með útvarpi, sjónvarpi, blöðum og bókum og bætum við opinberum fundum. Að mínu áliti er óhætt að fullyrða að mikil hætta er á að umræðan hætti að vera skoðanaskipti og snúist upp í fréttaflutning eða jafnvel upphrópanir um það sem litlu eða engu skiptir. Það hefur heyrst að menn séu dæmdir fyrirfram með opinberu og óopinberu umtali. Það er líka hægt að endurupptaka mál og dæma að nýju með áróðri og á röngum forsendum. Við hlið heilbrigðrar umræðu eru í ýmsu skyni, stundum góðu, stundum miður góðu, tilraunir til að hafa áhrif á almenningsálitið með áróðri og auglýsingum. Og stundum eru ýkjufrásagnir settar á prent í því skyni einu að auka sölu blaðanna. Slíkt getur orðið varðandi dóma sem annað. Ég held að það væri engum til góðs að dómarar reyndu að taka þátt í slíkum leik sjálfir eða með aðstöð áróðurs- manna af einhverju tagi. Væri ekki heldur ógeðfellt ef í útvarpinu væri sagt: í tilefni af frétt í gær um ummæli forsætisráðherra um Hæstarétt á fundi á ísafirði hefur auglýsingastofan Alvarlegt fólk, sem annast upplýsingaþjónustu fyrir Hæstarétt, sent frá sér fréttatilkynningu. Segir þar m.a. að forsætisráðherra sé í lófa lagið að bæta úr því sem hann telur ranglega að lýsi undirlægjuhætti við hann og fyrirrennara hans með því að gera tillögur um lagabreytingar á viðkomandi sviðum. Raunar sé honum það skylt þar sem hann hafi ekki síður en dómararnir í Hæstarétti hátíðlega lofað því að vinna eftir stjórnarskránni. Um þetta er það í fyrsta lagi að segja að það væri ógeðfelld yfirlýsing þó að innihaldið hér væri efnislega rétt leiðrétting. í öðru lagi er stuttur vegur frá þessu yfir í áróður með síbyljuendurtekningum og duldum tilraunum til skoðanamót- unar. I mínum huga er það því svo að í íslensku samfélagi er hætt við að þátttaka dómara í opinberri umræðu um dóma skapaði óviðunandi aðstæður. Ég þykist nú hafa fært fyrir því nokkur rök að þrátt fyrir allt sé ekki meðmæla vert að dómarar blandi sér í opinberar umræður um dómsmál. Eftir er sú spurning hvort þessi niðurstaða leiði til þess að einhverjir aðrir ættu líka að halda sér utan við þessa umræðu. I fyrsta lagi má spyrja hvort réttarfarið í landinu sé með þeim hætti að lögmenn ættu ekki að láta hér til sín taka. Ég held að það megi aðallega segja í einu sambandi, það er um mál sem þeir hafa sjálfir farið með. Þetta er ekki vegna þess 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.