Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Page 38

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Page 38
5. KRÖFUR TRYGGÐAR MEÐ ÖÐRU EN VEÐI í FASTEIGN Kröfu kunna að fylgja annars konar tryggingarréttindi en veðréttur í fasteign- um. Þannig má sem dæmi nefna handveð í lausafé, bankaábyrgð eða ábyrgðar- loforð þriðja manns. Ætla verður, að hér gildi meginregla sú, sem orðuð var í kafla 1.3, þ.e. að skuldaraskipti geti því aðeins orðið, að kröfuhafi samþykki. Ber í fyrsta lagi að hafa í huga, að engan veginn er sjálfgefið, að verðmæti tryggingarinnar nægi til greiðslu skuldarinnar. Skiptir því máli fyrir kröfuhafa, hver skuldarinn er. Þá hefur og verið talið, að framangreind meginregla gildi án tillits til þess, hversu örugg tryggingin er. Þannig er talið, að ekki skipti máli, þótt verðmæti veðs sé meira en fjárhæð skuldar, og ekki skipti heldur máli, hversu góð tryggingin er, t.d. bankatrygging eða greiðsluábyrgðartrygging.35 Ber í þessu sambandi að hafa í huga, að í þeim tilvikum, þar sem þriðji maður hefur gengist í ábyjgð eða sett eign sína að veði til tryggingar greiðslu skuldar, hefur greiðslugeta skuldara áhrif á möguleika þriðja manns til þess að fá fullnustu endurkröfu sinnar, ef til þess kemur, að kröfuhafi gengur að ábyrgðar- manni eða veðsala á grundvelli ábyrgðarloforðsins eða veðleyfisins. Skiptir þannig öllu máli fyrir ábyrgðarmanninn, hver skuldarinn er. Er í samræmi við þetta við það miðað, þegar þriðji maður hefur gengist í ábyrgð eða sett eign sína að veði, að tryggingin falli brott við skuldaraskipti, þar sem nýr aðalskuldari kemur í stað hins upphaflega, nema annað leiði af samningi.36 6. FELUR SAMNINGUR FRAMSELJANDA OG FRAMSALSHAFA UM ÞAÐ, AÐ FRAMSALSHAFI TAKI AÐ SÉR GREIÐSLU SKULDAR í SÉR LOFORÐ I ÞÁGU ÞRIÐJA MANNS? 6.1 Almennt Ekki er fyllilega ljóst samkvæmt íslenskum rétti, hvort og þá jafnframt að hverju marki kröfuhafi getur byggt rétt á samningi milli skuldara (framseljanda) og þriðja manns (framsalshafa) um það, að hinn síðarnefndi taki að sér greiðslu skuldar. Hægt er að líta á slíka samninga með tvennum hætti. Annars vegar er hægt að hugsa sér, að slíkir samningar varði einungis innbyrðis réttarsamband framseljanda og framsalshafa, en veiti kröfuhafa engan rétt á hendur framsals- hafa. Hins vegar má hugsa sér, að slíkir samningar framseljanda og framsalshafa veiti kröfuhafa beinan rétt á hendur framsalshafanum. Að þessu álitaefni er að vísu vikið í sérlagaákvæðum, sem gilda um starfsemi 35 Bernhard Gomard, sama rit, bls. 309. 36 Sjá um þetta nánar Bernhard Gomard. sama rit, bls. 309; Henry Ussing. Kaution, Kaupmanna- höfn 1926, bls. 248; Henry Ussing, Enkelte kontrakter, bis. 198; Per Augdahl, sama rit, bls. 379 - 380. 32

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.