Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 11

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 11
orðið verulegur munur á skyldu skuldarans eftir því, hver kröfuhafinn er. Svo er t.d. um vinnusamninga, afnotasamninga og framfærslusamninga. Getur kröfuhafi þá ekki framselt rétt sinn samkvæmt samningnum.8 Hér má t.d. benda á ákvæði 44. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, þar sem fram kemur, að óheimilt sé leigjanda að framselja leigurétt sinn eða framleigja hið leigða húsnæði án samþykkis leigusala, nema annað leiði af ákvæðum IX. kafla laganna. Það telst ekki framsal á leigurétti eða framleiga, þótt leigjandi heimili nákomnum skyldmennum eða venslamönnum sínum búsetu í hinu leigða húsnæði ásamt sér eða fjölskyldu sinni, enda haldist fjöldi heimilisfólks innan eðlilegra marka miðað við stærð og gerð leiguhúsnæðisins, sbr. 2. mgr. 44. gr. laganna. 1.5 Mismunandi reglur um framsal krafna 1.5.1 Almennar kröfur og viðskiptabréfakröfur Við umfjöllun um réttarreglur þær, sem gilda um framsal krafna, er stundum greint á rnilli þess, sem kallaðar eru almennar kröfur annars vegar og við- skiptabréfakröfur hins vegar. Um þá orðnotkun sjá t.d. Hrd. 1987 348 (Oy Credit) og Hrd. 1988 66 (Idex Aps). Er þá átt við, að almennar kröfur séu allar aðrar kröfur en þær, sem lúta réttarreglum um viðskiptabréf. Almennar kröfur geta verið hvort heldur sem er munnlegar eða skriflegar.9 í því, sem hér fer á eftir, er eingöngu fjallað um framsal almennra krafna, nema þar sem annað er sérstaklega tekið fram. Um reglur þær, sem gilda um framsal við- skiptabréfakrafna, vísast til „Kaflar úr kröfurétti“ eftir Ólaf Lárusson og „Víxlar og tékkar“ eftir sama höfund. Þá takmarkast umfjöllunin hér á eftir við að lýsa réttarreglum um aðilaskipti kröfuréttinda með löggemingi, þótt til samanburðar sé vikið að öðrum þeim atvikum, er leitt geta til aðilaskipta. I íslenskum lögum er engin almenn regla um það, hvaða bréf eru viðskipta- bréf. Skuldabréf eru viðskiptabréf, sbr. tilskipun frá 9. febrúar 1798. Önnur lagaákvæði gera ráð fyrir því, að ýmis önnur bréf en skuldabréf geti verið viðskiptabréf. Er við það miðað, að viðskiptabréf séu öll þau bréf, sem ganga manna í milli með sama hætti og skuldabréf gera, þannig að þörf sé á, að sams konar reglur gildi um þau og viðskiptabréf. Samkvæmt þessu ráða við- skipti manna á hverjum tíma því, hver bréf teljast til viðskiptabréfa. Getur það breyst með breyttum viðskiptaháttum. í 1. gr. laga nr. 9/1993, urn verð- bréfaviðskipti, er hugtakið „verðbréf‘ skilgreint sem a) hvers konar fram- seljanleg kröfuréttindi til peningagreiðslu eða ígildis hennar, svo og fram- seljanleg skilríki fyrir eignarréttindum að öðru en fasteign eða einstökum 8 Þorgeir Örlygsson. Skuldaraskipti, bls. 21-22; Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti. bls. 42. 9 Henry Ussing, Obligationsretten, bls. 211. 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.