Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 51

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 51
og svo framvegis. Þá hafa viðurlög verið hert, en hámarksrefsing var áður 3 ára fangelsi. 3. MEÐFERÐ KYNFERÐISBROTA Kynferðisbrot sæta rannsókn og meðferð að hætti opinberra mála og eru ákvæði þar að lútandi í lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Rannsókn máls hefst með því að kæru er beint til lögreglu eða ríkissak- sóknara og að athugun lokinni er tekin afstaða til þess hvort tilefni sé til rann- sóknar. Rannsóknarlögregla ríkisins annast rannsókn kynferðisbrota og er markmið rannsóknar að afla allra nauðsynlegra gagna til þess að ákæranda sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja skuli mann til sakar, svo og til að afla gagna til undirbúnings málsmeðferðar. Lögreglu ber að vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu eða sektar. Þá skulu lögreglumenn rannsaka og afla allra tiltækra gagna um verknað þann sem um er að ræða, svo sem stað og stund og öll nánari atvik, sem ætla má að skipt geti máli, leita þess sem grunaður er um brot, finna sjónarvotta og aðra sem ætla má að borið geti vitni, svo og að hafa upp á sýnilegum sönnunargögnum og munum sem hald skal leggja á. Þá skal rannsaka vettvang ef við á og yfirleitt öll ummerki sem kunna að vera eftir brot. Þá ber rannsóknara að hlutast til um að fram fari læknisskoðun sem kæra gefur tilefni til. Rannsóknari yfirheyrir sakborning og vitni og semur skriflegar skýrslur um rannsóknaraðgerðir sínar. Sakborningi er á öllum stigum opinbers máls óskylt að svara spurningum sem varða refsiverða hegðun sem honum er gefin að sök og hann á rétt á skipun réttargæslumanns. Stundum leiðir rannsókn til þess að rannsóknari krefst gæsluvarðhalds yfir sakbomingi. Slíkri kröfu er beint til dómara og skulu nauðsynleg gögn fylgja henni. Dómari tekur afstöðu til gæsluvarðhaldskröfunnar með úrskurði, sem unnt er að skjóta til Hæstaréttar. Að lokinni rannsókn sendir rannsóknari málið til ríkissaksóknara, sem metur framhaldið á grundvelli rannsóknargagna. Ef ríkissaksóknari telur það sem fram er komið í málinu ekki nægilegt eða lfklegt til sakfellis lætur hann við svo búið standa, en ella leggur hann málið fyrir dóm með því að gefa út ákæru. Þegar héraðsdómara hefur borist ákæra athugar hann fyrst hvort málið skuli sæta frávísun, en telji hann skilyrði til að taka mál til meðferðar er þinghald ákveðið þar sem mál verður þingfest. Ber dómara, eigi síðar en 3 vikum eftir að hann fékk ákæru í hendur, að gefa út fyrirkall á hendur ákærða sem greini stað og stund þingfestingar ásamt áskorun til hans um að sækja þing. Við þingfestingu máls er ákærði spurður hvort hann játi efni ákæru rétt og geri hann það og brot það sem hann er sakaður unt getur ekki varðað að lögum þyngri refsingu en átta ára fangelsi, er unnt að taka málið til dóms og jafnvel dæma í fyrsta þinghaldi. Neiti ákærði sök er ákveðin aðalmeðferð, en þá fer fram í einni lotu yfirheyrsla yfir sakborningi og vitnum og að skýrslutökum loknum fer fram munnlegur málflutningur. 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.