Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 25
K, sem skuldaði Á fé, undirritaði yfirlýsingu þess efnis, að Á mætti veita við- töku greiðslum þeim, sem hann átti að fá frá biskupsembættinu, og skyldi kaupsamningurinn vera í vörslum tiltekins lögmanns, þar til skuld K við Á væri að fullu greidd. Yfirlýsing þessi var sýnd á biskupsskrifstofunni og árituð af biskupsritara. Þessi skuldaskipti þótti verða að meta svo, að með þeim hefði skapast veð, handveðsréttareðlis, til handa Á í gjaldkröfu K á hendur biskups- embættinu. Sjá einnig Hrd. 1969 921 (Flóabáturinn Baldur). Þar hagaði þannig til, að H lánaði S fé til bráðabirgða, og skyldi lánið endurgreiðast með fé, sem S átti ógoldið hjá Flóabátnum Baldri hf. (FB). Var atvinnu- og samgöngumálaráðu- neytinu sem greiðsluaðila vegna FB tilkynnt þetta samstundis. Talið var, að með tilkynningu S til ráðuneytisins, um greiðslu til H á innstæðu S hjá ráðuneytinu vegna FB, hefði stofnast H til handa veð í nefndri innstæðu, handveðsréttareðlis. I 2. gr. aðfararlaga nr. 90/1989 kemur fram, að sá getur krafist aðfarargerðar, sem aðfararheimild ber með sér, að sé rétthafi hennar, svo og sá, sem nýtur handveðréttar í aðfararhæfri kröfu. Reglan um rétt handveðhafa þykir eðlileg í ljósi almennra reglna um réttindi handveðhafa í öðrum tilvikum og vegna þess, að færst hefur í vöxt, að tryggingar í viðskiptum séu veittar með þessum hætti, t.d. með handveði í skuldabréfum. Þykir ekki ástæða til að sporna við, að handveðhafi geti innheimt kröfu, sem hefur verið sett að veði til hans með þessum hætti, enda er að jafnaði gengið út frá því, að afborganir gangi upp í kröfu hans á hendur veðsala. Það ræðst af almennum reglum um veðréttindi, hvort svo verður litið á, að gerðarbeiðandi njóti handveðréttar í aðfararheimild. Gerðarbeiðandi er talinn bera sönnunarbyrði um tilvist þessara réttinda, ef ágreiningur rís um þau við aðför. Hugtakið handveðréttur í 2. gr. aðfararlaga er þar ekki notað í víðtækari merkingu en almennt tíðkast. Því er þannig ekki ætlað að taka til réttinda þess, sem hefur gert fjámám í aðfararhæfri kröfu og fengið vörslur hennar, enda er í slíku tilviki ekki um handveðrétt að ræða í venjulegum skilningi þess hugtaks. 2.4 Réttarstaða skuldara 2.4.1 Meginreglur uni mótbárur skuldara Vegna þess tillits, sem taka verður til hagsmuna skuldara, gildir sú megin- regla um framsal almennra krafna, að skyldur skuldara eiga ekki að aukast við framsalið. Ef framseljandi hefur heitið framsalshafa víðtækari réttindum en þeim, sem upphaflegur kröfuhafi átti, hefur loforðið ekki áhrif að því leyti. Verður að ætla, að þetta gildi að meginstefnu til, þótt framsalshafi hafi haft ástæðu til að ætla, að hann hlyti hin víðtækari réttindi.52 52 Henry Ussing, Obligationsretten, bls. 219; Bernhard Gomard, Obiigationsret, bls. 79. 91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.