Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 23
sé ekki fyrir þessu, en lögjöfnun frá ákvæðum um umboð sé fullkomlega rétt- mæt.46 2.3.2 Réttarstaðan gagnvart skuldheimtumönnum framseljanda og viðsemjendum öðrum en veðhöfum Samkvæmt almennum reglum um framsal kröfuréttinda er það framsals- gerningurinn, sem ræður úrslitum um réttarstöðu framseljanda og framsalshafa og um lögvernd þeirra gagnvart þriðja manni. Ef frá eru taldar viðskiptabréfareglur og reglur um nauðsyn tilkynningar til skuldara til þess að útiloka, að skuldari geti losnað undan skyldu sinni með því að greiða til framseljanda, þarf ekki frekari ráðstafanir til yfirfærslu en framsalsgeminginn. Þarf þannig hvorki tilkynningu til skuldara um yfir- færsluna né afhendingu skjals þess, sem krafan kann að vera tengd við. Fram- sal slíkra kröfuréttinda er t.d. um réttarvernd ekki háð þinglýsingu eða því, að gerðar séu aðrar tryggingarráðstafanir, hvorki gagnvart skuldheimtumönn- um né síðari framsalshöfum.47 Gilda hér svipaðar reglur og um aðilaskipti að lausafé. 2.3.3 Veðsetning kröfu Megineinkenni veðréttar er það, að um er að ræða forgangsrétt til að leita fullnustu fyrir tiltekinni greiðslu í ákveðinni eign, veðinu. Að baki hugtakinu veðréttindi býr því það, að ákveðinn aðili á forgangsrétt til að taka fjárhagslegt verðmæti einhverrar greiðslu af verði tiltekinnar eignar. Af því er talið leiða, að veðréttindi geti aðeins stofnast í eignum, sem hafa fjárhagslegt gildi, en á móti kemur, að unnt er að stofna til veðréttinda yfir hvers konar eignum, sem hafa fjárhagslegt gildi, þ.m.t. kröfuréttindum. Heildstæð ákvæði skortir hins vegar í íslenskum rétti um það, hver kröfuréttindi verða sett að veði og hverjar tryggingarráðstafanir eru nægjanlegar til verndar slíkum rétti. Réttarreglur um það, með hvaða hætti kröfur verða veðsettar, eru óljósar sam- kvæmt gildandi íslenskum rétti. Er þá sérstaklega átt við, hverjar tryggingar- ráðstafanir er rétt að áskilja til þess að veðréttur í kröfum öðlist réttarvemd. 46 Ólafur Lárusson, Eignaréttur I, bls. 237-238. í þessu sambandi hefur verið nefndur Hrd. 1940 496 (Framfærslunefnd). Framfærslunefnd í kaupstað hafði lánað styrkþega bifreið til afnota. Nefndinni var kunnugt um, að bifreiðin var skráð á nafn styrkþegans í bifreiðaskránni og lét það viðgangast, að styrkþeginn notaði bifrciðina sem sína eign. Síðan scldi hann grand- lausum manni bifreiðina, og taldi Hæstiréttur kaupandann þar með hafa orðið eiganda bifreiðar- innar fyrir traustfang og hafnaði brigðakröfu kaupstaðarins. Hér kann niðurstaða málsins að hafa ráðist af því, að styrkþeginn var skráður eigandi í opinberri skrá. Sjá til hliðsjónar ákvæði 1. mgr. 33. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978. 47 Ólafur Lárusson, Eignaréttur I, bls. 228-229; Þorgeir Örlygsson, Þinglýsing kaupsamn- ings í fasteignakaupum, Tímarit lögfræðinga, 1. hefti 1989, bls. 29-30. 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.