Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 55
þvottaherbergi íbúðarinnar þar sem hann þröngvaði henni til holdlegs samræðis.
Ákærði batt síðan konuna á höndum og fótum eftir að hann hafði komið fram
vilja sínum. I þriðja lagi var ákærða gefið að sök að hafa í september 1992
þröngvað konu tvisvar til holdlegs samræðis. í fjórða lagi var ákærða gefið að
sök rán með því að ráðast í nóvember 1992 á starfsstúlku sólbaðsstofu með
hníf að vopni, tekið fyrir vit hennar, dregið hana afsíðis og fengið hana með
ógnunum og líflátshótunum til að opna fyrir sig afgreiðslukassa stofunnar og
tók ákærði þar reiðufé, tékka og greiðslukortanótur. Auk þessa var ákærða gefið
að sök að hafa framið fjársvik og jafnframt ekið bifreið undir áhrifum áfengis.
Ákærði var sakfelldur fyrir þau brot sem hann var ákærður fyrir. Sakfelling
vegna atburðarins sem varð á Akureyri var meðal annars byggð á DNA sam-
anburðarrannsókn sem fram fór á sæði sem fannst á vettvangi og blóði ákærða.
Kemur fram í dóminum að líkur á að fá fram sams konar greiningu frá manni
óskyldum ákærða væru taldar 1 á móti 300.000. í héraði var ákærði dæmdur
í 10 ára fangelsi, en hann hafði nokkurn brotaferil að baki og hafði frá árinu
1987 verið dæmdur 11 sinnum fyrir þjófnað, fjársvik og skjalafals. Þá var
hann dæmdur til greiðslu skaðabóta, m.a. til að greiða konunni á Akureyri
1.500.000 krónur í skaðabætur. Hæstiréttur þyngdi refsingu ákærða í 12 ára
fangelsi og staðfesti ákvæði héraðsdóms um skaðabætur. Segir svo m.a. í dómi
Hæstaréttar: „Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess, að ákærði hefur
gerst sekur um óvenju hrottafengnar og háskalegar líkamsárásir og stórfelld
kynferðisbrot og beitt við það hættulegum verkfærum. Hann hefur rofið heim-
ilisgrið og vakið fórnarlömbum sínum ótta um líf þeirra og velferð og í einu
tilviki einnig ungra barna brotaþola".
Dómur Hæstaréttar Danmerkur 12. ágúst 1992
Hér er rétt til samanburðar að greina frá dómi sem kveðinn var upp í Hæsta-
rétti Danmerkur yfir 38 ára gömlum manni, sem áður hafði hlotið dóm fyrir
nauðgun auk dóma fyrir auðgunarbrot. I þessu máli var ákærða gefið að sök
að hafa nauðgað 4 konum mjög gróflega á árinu 1990. Beitti ákærði hnífum
í tveimur tilvikum, auk þess beitti hann hálstaki og hótaði konunum lífláti
létu þær ekki að vilja hans. Refsing ákærða var ákveðin 9 ára fangelsi.
Fullyrða má að sakargiftir í þessu ntáli voru mun alvarlegri en í máli því
sem reifað var hér á undan.
Dómur Hæstaréttar 24. mars 1994
í máli þessu var ákærða, þá 46 ára gömlum, gefið að sök kynferðisbrot og
líkamsárás með því að hafa um 3 tíma skeið frá því snemma haustmorguns
árið 1992 ráðist með ofbeldi á 54 ára gamla konu í kirkjugarði í Reykjavík
og reynt að þröngva henni til samræðis og jafnframt neytt hana til annarra
kynferðismaka en samræðis. Þegar lögreglumenn komu á vettvang lá konan
nær fatalaus á jörðinni og stóð ákærði yfir henni með getnaðarlim sinn utan-
klæða. Konan hlaut áverka um allan líkamann og jafnframt fundust mikil
óhreinindi í klofi og ytri kynfærum. Konan taldi ákærða ekki hafa tekist að
hafa við sig samfarir, en augljóst hafi verið að hann hati ætlað sér það.
121