Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 13

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 13
grundvallarreglan í 2. gr. tilskipunar frá 9. febrúar 1798, um mótbárutap skuld- arans, getur leitt til þess, að jafnvel árituð réttindi glatast. Ef eigandi við- skiptabréfs hefur ritað framsal sitt á bréf, á hann það á hættu að glata rétti sínum til að bera fyrir sig mótbárur gegn gildi framsalsins, ef um veikar mót- bárur er að ræða. Hins vegar glatar hann ekki þeirri mótbáru, að framsalið sé falsað, eða að hann hafi verið ólögráða, er hann gaf það, eða að hann hafi verið neyddur til að gefa það með líkamlegu ofbeldi eða hótunum um að beita því þegar í stað.14 1.5.3 Dæmi um mismunandi áhrif framsalsreglnanna í því, að framsalshafi viðskiptabréfs geti öðlast meiri rétt heldur en fram- seljandinn átti, eru fólgin aðalafbrigði sérreglna um viðskiptabréf frá hinum almennu framsalsreglum. Til þess að útskýra mun almennra krafna og við- skiptabréfakrafna að þessu leyti skulu nefnd eftirfarandi dæmi: Skuldari (S) skuldar kröfuhafa (K) kr. 10.000. K lofar S síðar að gefa honum eftir helming skuldarinnar vegna einhverra sérstakra atvika. Eftir þetta loforð framselur K kröfuna til þriðja manns (Þ), en getur ekkert um eftirgjöfina við hann. Þ ætlar síðan á gjalddaga að innheimta kröfuna hjá S, en þá vill S ekki borga nema helming hinnar upphaflegu skuldar vegna loforðsins frá K. Mis- munandi reglur gilda um rétt S til þess að bera fyrir sig loforð K, allt eftir því, hvort krafan er viðskiptabréfakrafa eða ekki. Ef krafan er viðskiptabréfakrafa, og eftirgjöfin er ekki rituð á viðskipta- bréfið, þá öðlast Þ þann rétt, sem bréfið bendir til, ef hann er grandlaus um eftirgjöfina. S getur því ekki borið fyrir sig þessa mótbáru gagnvart Þ, ef það verður ekki séð af bréfinu, að mótbáran sé til. í þessu felst, að mótbára sú, sem S átti, glatast honum gagnvart Þ, en S getur á hinn bóginn öðlast bótarétt á hendur K að öðrum skilyrðum fullnægðum.15 Ef um almenna kröfu er að ræða, þá getur S borið það fyrir sig gagnvart Þ, að K hafi gefið honum eftir helming skuldarinnar. S er þá ekki greiðsluskyldur nema á helmingnum, ef honum tekst að leiða sönnur að þessari staðhæfingu sinni. Þetta dæmi sýnir mismunandi rétt skuldara til þess að bera fram mótbáru við hinn nýja kröfuhafa, allt eftir því hvort um almenna kröfu eða viðskipta- bréfakröfu er að ræða. Næsta dæmi sýnir hins vegar, hvemig þriðji maður getur glatað rétti yfir kröfu og mismunandi réttarstöðu þriðja manns, allt eftir því hvort um almenna kröfu eða viðskiptabréfakröfu er að ræða. S skuldar K 10.000 kr. K skuldar ÞA 5.000 kr. og setur honum kröfu sína á hendur S að sjálfsvörsluveði. Krafan er áfram í höndum K (veðsala) og ekki 14 Sjá nánar Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti, bls. 53-54; Bernhard Gomard, Obli- gationsret, bls. 70. 15 Sjá nánar Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti, bls. 49; Bernhard Gomard, Oblig- ationsret, bls. 70. 79
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.