Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Qupperneq 57

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Qupperneq 57
t\'eggja um neyðaróp frá Y hafa á sér ólíkindablæ. Þá er til þess að líta að vitnin voru, eins og áður sagði, í gleðskap í húsi ákærða fyrr um nóttina og geta hafa talið sig eiga þangað erindi aftur, og því knúið dyra. Sú staðreynd, að kærandi hljóp allsnakin úr húsi ákærða, eftir að hafa heyrt barið að dyrum, og til L vinkonu sinnar um kl. 4.30 um nóttina, er ekki út af fyrir sig nægileg vísbending um, að ákærði hafi beitt hana ofbeldi". Minni hluti Hæstaréttar, 2 dómarar, vildi sakfella ákærða fyrir tilraun til nauðgunar og dæma hann til 10 mánaða fangelsisvistar. Dómur Hæstaréttar 17. maí 1991 I máli þessu var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi, þar af voru 3 mánuðir skilorðsbundnir fyrir brot gegn lagagrein sem nú er sambærileg 196. gr. hegn- ingarlaganna, eða svokölluð misneyting. Einnig var ákærði dæmdur til að greiða kæranda 200.000 krónur í miskabætur. Segir svo í dómi Hæstaréttar: „I máli þessu liggur það ljóst fyrir, að ákærði fór í heimildarleysi inn í íbúð vitnisins K umræddan morgun að afloknu samkvæmi þar og kom að henni sofandi á rúmi sínu. Hún þekkti hvorki til ákærða né V, félaga hans, áður en þetta gerðist, og átti ekki von á neinum inn til sín. Ákærði hefur viðurkennt samfarir við stúlkuna. Framkomnar upplýsingar gefa eindregið til kynna, að ákærði hafi fært hana úr fötum og byrjað að hafa við hana samfarir, án þess að hún hafi skynjað hvað um væri að vera, sökum svefndrunga og ölvunar. Hafi hún þannig ekki getað spornað við samförunum fyrr en hún sjálf hefur lýst. Jafnframt hafi ákærði ekki haft neina ástæðu til að ætla, þrátt fyrir eigin ölvun, að samfarimar væru að vilja stúlkunnar". Dómur Hæstaréttar 17. maí 1991 Hér er um svipað mál að ræða og reifað var hér á undan, en refsing ákærða var ákveðin 9 mánaða fangelsi, þar af voru 6 mánuðir skilorðsbundnir. Einn dómenda skilaði sératkvæði og taldi að refsing ætti að vera óskilorðsbundin. U 1961 1073 og U 1978 762 Til samanburðar má nefna ofangreinda dóma, en samkvæmt fyrri dóminum hafði 35 ára gamall maður samræði við 15 ára gamla stúlku, sem gat ekki spomað við samræðinu sökum ölvunar. Refsing hans var ákveðin fangelsi í 1 ár og 6 mánuði. Samkvæmt seinni dóminum hafði maður samræði við ölvaða, sofandi konu og hlaut 4 mánaða fangelsi. Ágreiningur var í dóminum um skilorðsbindingu að hluta. Dómur Hæstaréttar 19. maí 1988 Ákærða var gefið að sök að hafa allt frá árinu 1971 og fram til ársins 1981 margsinnis haft kynferðismök við dóttur sína fædda 1965. Hann var einnig ákærður fyrir kynferðismök gagnvart tveimur öðrum ungum börnum sínum, en hann var sýknaður af þeirri háttsemi. í héraði þótti sannað, að ákærði hafi haft reglulega kynferðismök önnur en samræði við stúlkuna að jafnaði einu sinni til tvisvar á viku. Héraðsdómur dæmdi ákærða til 4 ára fangelsisvistar, en í Hæstarétti var refsingin færð niður í 2 ár og 6 mánuði. 123
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.