Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 72

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 72
5. Lögfræðingatal Sérstök ritnefnd hefur unnið ötullega allt árið við lokaáfanga og útgáfu Lög- fræðingatals, sem hefur verið í undirbúningi um all nokkum tíma. I ritnefndinni eru Dögg Pálsdóttir, Garðar Gíslason, sem er formaður, og Skúli Guðmundsson. Ritstjóri Lögfræðingatals er Gunnlaugur Haraldsson og útgefandi Iðunn hf. Þessu stórmerka ritverki er nú lokið og mun sala þess hefjast á næstu dögum. Verkið er í þremur bindum en fjórða bindið, sem er nafnaskrá mun koma út síðar. Ritstjórinn mun kynna verkið nánar hér á eftir, auk þess sem eintök liggja hér framnti. 6. Aðild að BHM. Samstarf við lögfræðingafélög á Norðurlöndum Á síðasta aðalfundi félagsins var kynnt sú ákvörðun stjómar að segja Lög- fræðingafélag íslands úr BHM. Tilkynning félagsins um þetta hafði verið send BHM í september á síðastliðnu ári. Kom úrsögnin til framkvæmda frá og með 1. október 1992. Aðalfundur BHM mun hafa samþykkt að leggja samtökin niður og er skilanefnd að störfum. Á hinn bóginn hefur enn aukist samvinna við önnur lögfræðingafélög á Norðurlöndum. Samtök lögfræðinga á Norðurlöndum héldu ársfund sinn á Akureyri dagana 9.-13. júní sl. Að ósk samtakanna annaðist Lögfræðingafélag íslands undirbúning þessa ársfundar. Lenti þunginn af því starfi á Ragnhildi Arnljótsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins. Fundur þessi tókst vel í hvívetna. Af hálfu Lögfræðingafélags íslands sátu fundinn Ragnhildur Amljótsdóttir og Sigríður Ingvarsdóttir auk formanns félagsins. Er það von stjómar að þessi tengsl, sem þama hafa myndast, megi haldast og verða félaginu og félags- mönnum til góðs. 7. Félagaskrá og félagsgjöld í ár voru 776 gíróseðlar sendir til félagsmanna með árgjaldi, sem hefur verið óbreytt sl. 3 ár, kr. 2.900. Alls hafa 578 greitt árgjaldið og eru félagsmenn, sem enn eiga ógreitt, hvattir til að standa skil á greiðslunni. Félagar eru í dag yfir 800 að tölu. 8. Stjórnarfundir Stjórnarfundir urðu alls 12. Milli funda unnu stjómarmenn mikið starf að auki við hin ýmsu verkefni, sem félagið annast. Þannig hefur Dögg Pálsdóttir, varaformaður axlað mikið verkefni í ritnefnd Lögfræðingatals ásamt með öðrum nefndarmönnum. Fjárreiður félagsins hafa verið í öruggum höndum Sigríðar Ingvarsdóttur og með sömu ágætum hefur Ásdís J. Rafnar haldið utan um rekstur Tímarits lögfræðinga. Áður er getið um sérstaka mál- þingsnefnd innan stjómar félagsins, en eðli máls samkvæmt var mikilli vinnu varið í undirbúning og skipulagningu þingsins. Ingvar J. Rögnvaldsson hélt áfram að sjá um ritarastörf og halda bækur. Öllum stjómarmönnum eru þökk- uð mikil og óeigingjöm störf í þágu félagsins. 138

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.