Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 16

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 16
1. Hætt er við að lög verði óhæfilega flókin og afleiðingin sú að þau verða illskiljanleg; þau glata þeim eiginleikum sem að framan er lýst og missa marks. 2. Lög kunna að vera til byrði og trafala, þau skerða ef til vill frelsi manna að nauðsynjalausu og afleiðingin verður, að ekkert svigrúm verður til að þegnar þjóðfélagsins geti mótað samskiptareglur sín í ntilli sem aðallega birtast í venjum. 3. Lög í ríki sem fullnægja á kröfum réttarríkis í víðtækari - ekki eingöngu formlegri merkingu, heldur einnig efnislegri merkingu orðsins - eiga ekki eingöngu að standast framangreindar lágmarkskröfur, heldur eiga þau að tryggja réttlæti. Réttlætishugtakið er flókið og í vissum skilningi mótsagna- kennt. Lög er aldrei hægt að orða svo, að tekið sé á öllum álitaefnum sem við blasa þegar fullnægja á réttlæti. Af því leiðir, að með lagaákvæðum er mörk- uð meginstefna og sett almenn regla um samskipti manna sem einkennist af staðalferli því sem áðurer lýst. Annars fer fjarri að þetta sé algilt, en máef til vill segja að lög stefni fremur í þessa átt. Með nokkurri einföldun má segja að með því séu hin almennu sjónarmið sem búa að baki gagnkvæmis- eða jafnaðarréttlætinu - justitia commutativa - aðallega höfð að leiðarljósi, þar sem áherzlan er á jafnvægi og jöfnuð í gagnkvæmum samskiptum. 4. Nútíma tækniþjóðfélag er svo flókið að nánast er ógerlegt að taka á öllum álitaefnum með settum lagaákvæðum. Ef áherzlan liggur á ríkisafskipti og félagshyggju tekur löggjafinn að seilast til sífellt fleiri og flóknari sviða mannlífsins. Reglur eru settar til að stýra háttsemi manna, jafnvel öllu lífi í þá átt sem valdhafar telja æskilegt og eftirliti er komið á til að framfylgja þeim. Ef áherzlan liggur á frjálshyggju og mönnum boðið að stjóma lífi sínu sjálfir og setja sér þau markmið sem þeir kjósa, verða átök og önnur vandræði milli manna og bmgðizt er við með reglum sem hætt er við að rígskorði samskipti manna og verði stöðugt flóknari. Síðan tekur við eftirlit með því að reglur séu haldnar og svo fer að lokum að menn geta hvorki notið frelsis né frumkvæðis í þéttum skógi reglugerðar- og eftirlitsríkisins. Þetta ýtir undir enn frekari ágreining sem dómstólar verða að útkljá - oft með því að móta skýrari reglur en þær sem fyrir eru. 5. Breytingar á nútíma tækniþjóðfélagi em svo örar að löggjafinn getur ekki lagað löggjöfina nægilega ört að nýjum aðstæðum. Þá gerist tvennt: Annars vegar verða lagabreytingar tíðar, lög verða brotakennd og tímabundin og það verður á kostnað stöðugleikans; hins vegar verða eyður í löggjöfinni, þannig að hún veitir enga úrlausn. Hvorttveggja vinnur gegn því að menn geti séð fyrir afleiðingar gerða sinna og skerðir réttaröryggi. Þá kemur til kasta dómstólanna að móta reglur úr brotakenndum og sfbreytilegum ákvæðum og fylla í eyður. 6. í afhelguðu þjóðfélagi þai' sem skortir á siðferðilega festu, sem er að nokkru leyti afleiðing lýðræðis, fjölmenningar og fjölhyggju, setja menn traust á lög í stað siðgæðis. Þau einkennast af almennt orðuðum yfirlýs- 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.