Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 19

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 19
„Hins vegar ber að skýra ákvæði nefndrar 4. gr. þannig, að þegar um mismunandi sjúkdóma eða slys er að ræða, beri starfsmanni réttur til launa fyrstu 14 dagana í hvert sinn, sem slík forföll ber að höndum". Orðalag ákvæðisins leyfði ekki þá skýringu að einskorða rétt starfsmanns við neitt tiltekið tímabil, enda væri slfkt aðeins á færi löggjafans en ekki dómstóla að ákvarða slfkt, hvort heldur réttur væri bundinn við almanaksárið, 12 mánaða tíma með tilfærslu milli almanaksára eða annað tímabil. Var í því samhengi tekið fram að Alþingi hefði hafnað tilmælum um að ótvírætt væri að forfallalaun væru bundin við 14 daga á ári samtals. í sératkvæði eins dómara sagði þetta: „Athugaefni er, hvemig með skuli fara, ef maður verður af nýju frá vinnu vegna slysa eða sjúkdóms, eftir að hann hefur notið fullra launa í fjórtán daga úr hendi vinnuveitanda. Urlausn þessa atriðis verður eigi leidd af orðalagi laganna. Ef lögin eru skýrð þannig, að nýr fjórtán daga fjarverutími með launum hefjist hverju sinni, er maður tekur nýjan sjúkdóm að dómi læknis, gæti kvillasamur maður fengið hvert veikindaorlofið með launum á fætur öðru, en maður, sem slasast alvarlega og verður frá vinnu mánuðum saman, fær þá einungis laun úr hendi vinnuveitanda fyrstu fjórtán dagana. Þessi skýring er eigi samrýmanleg eðli máls og fær eigi staðizt. Lögin verður að skýra þannig, að sköpuð sé eðlileg regla, svo sem kostur er, og mönnum gert sem jafnast undir höfði. Eins og lögin em úr garði gerð, er það bezt í samræmi við lagarök að telja, að starfsmenn þeir, sem 4. gr. laganna tekur til, eigi rétt til fullra launa úr hendi vinnuveitenda í veikindaforföllum allt að fjórtán daga á tólf mánuðum hverjum. Hefur slík regla eigi verið felld af löggjafarvaldinu". Ef textinn er skilinn eftir orðanna hljóðan merkir hann að menn eigi að njóta forfallalauna í 14 daga hvert sinn sem þeir veikjast eða slasast. Þar sem slík niðurstaða þykir óvænleg eins og nánar er rætt í dóminum bregður Hæstiréttur á það ráð að setja nýja reglu til viðbótar ákvæðum 4. gr. þótt orðalagi sé hagað þannig að verið sé að skýra ákvæðið. En meiri hluti og minni hluti fara ólíkar leiðir. Athygli vekja þau orð í minnihlutaatkvæðinu að lögin verði að skýra þannig „að sköpuð sé eðlileg regla“ og sé það í beztu samræmi við lagarök að laun séu miðuð við forföll í allt að 14 daga á 12 mánuðum hverjum. Lagarökin eru væntanlega þau að með slíkri reglu sé jafnræði bezt tryggt. Ummælin sýna að dómarinn gerir sér ljóst að með þessari niðurstöðu er verið að setja nýja reglu þess efnis, sem Alþingi hafði í reynd hafnað þótt ekki væri formlega felld. Dómur Hæstaréttar 13. janúar 1967 (H 1967 16) S sem var undir áhrifum áfengis settist ásamt I, félaga sínum, inn í bifreið. S ræsti bifreiðina og tók hana lítið eitt af stað. S kvaðst ekki hafa ætlað að aka henni, heldur hita hana upp og hlusta á útvarp. Hann var ákærður fyrir að hafa reynt að aka bifreiðinni undir áhrifum áfengis. í ákæru taldist þetta meðal annars varða við 2., sbr. 3. mgr. 25. gr. umferðarlaga nr. 26/1958, sbr. 80. gr. og 1. mgr. 24. gr„ sbr. 45. gr. áfengislaga nr. 58/1954. 113
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.