Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 23

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 23
Með fordæmum er staðfest eða mótuð regla sem gilda á í samskiptum málsaðila. Aðrir í sömu eða áþekkri aðstöðu fylgja henni síðan og dómstólar leggja hana til grundvallar eða taka mið af henni í dómum sínum þegar það á við. Engin ákvæði í settum lögum skuldbinda dómstóla til að fylgja fordæmum, en í reynd gera dómstólar það án efa sökum þess að þeir telja sér það almennt skylt. Oðrum kosti fullnægðu fordæmi sem réttarheimild ekki þeim kröfum sem gera verður til laga, að vera framvirk - ekki afturvirk og að vera stöðug. Nú eru dæmi um að Hæstiréttur víki frá fordæmum sínum og fyrir því kunna að vera gild rök svo sem nýjar aðstæður, breytt gildismat og brostnar forsendur, en áskilja verður að þá færi Hæstiréttur og aðrir dómstólar ýtarleg rök fyrir breyttri stefnu. Snöggar breytingar á dómaframkvæmd eru afar óheppilegar. Betra er að breytingar verði skref fyrir skref, þannig að sem minnstri röskun valdi, enda má þá oft ráða hvert stefni og forsagnargildi fordæmanna rýmar ekki að ráði.25 Þegar meta skal hvemig fordæmi ráða svigrúmi dómstóla til að móta reglur verður að leggja áherzlu á að með dómi er skorið úr ákveðnu sakarefni þeirra sem mál eigast við. Rökstuðning dóms og niðurstöðu verður að skoða í því ljósi. Nú era málavextir í tveimur málurn sjaldnast nákvæmlega eins og það veitir dómstólum ákveðið svigrúm til að túlka fordæmin og auka við nýjum reglum. Dæmi eru um að Hæstiréttur hafi túlkað dóm með tilteknum hætti og sú túlkun lögð til grandvallar í síðari dómi,26 eða það tekið sérstaklega fram að dómur hafi ekki fordæmisgildi vegna þess að málavextir séu ekki sambæri- legir.27 Um réttarheimildir, eins og kjarasamninga, þjóðréttarreglur og samninga þjóðfélagsþegnanna, gilda svipuð sjónarmið og um lagasetningu dómstóla og þær réttarheimildir sem þegar hefur verið fjallað um og þá einkum sett lög í rýmri merkingu orðsins. Um meginreglur laga, eðli máls, kenningar fræði- manna, almenna réttarvitund þarf tæplega að fjölyrða. Þær hafa almennt ekki að geyma svo afdráttarlausar reglur að svigrúm dómstóla til að setja reglur sé verulega þrengt. 10. ÓHJÁKVÆMILEGT AÐ DÓMSTÓLAR SETJI REGLUR Settar lagareglur eru þess eðlis sem meðaltalsstaðlar að með þeim verður aldrei tekið á öllum álitaefnum eins og fyrr hefur verið tekið fram. Venja, fordæmi, meginreglur laga og eðli máls eru ekki þannig úr garði gerðar að þær bindi dómstóla með sama hætti og settar reglur. Nú þolir þjóðfélagið ekki óvissu ef það á að haldast í eðlilegum skorðum og því er óhjákvæmilegt að eyða henni. Það er hægt að gera á fleiri en einn veg. 25 Sjá nánar Sigurð Líndal: „Þáttur Hæstaréttar í réttarþróun á íslandi“. Tímarit lögfræðinga. 45. árg. (1995), bls. 87 o.áfr. 26 Sjá H 1983 691. 27 Sjá H 1985 1168, H 1988 754. 117
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.