Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Blaðsíða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Blaðsíða 25
í ágreiningsmálum þótt lögbókin, Code civil, skæri ekki úr. Dómari sem synjaði dóms á þessum forsendum gerðist sekur um það sem ef til vill mætti kalla á íslenzku „synjun réttlætis“ eða déni de justice.30 Með þessu var dómurum gert skylt að fella dóma í málum sem fyrir þá væru lögð og málskot til löggjafans var þar með úr sögunni. Þessi skylda dómara að skera úr ágreiningi var ekki bundin við Frakkland. I þýzkri réttarsögu er löng saga af því hvemig háttað hefur verið skyldu dómara til að skera úr ágreiningi, jafnvel þótt réttarheimildir séu ófullkomnar. Um það vom notuð orðin „iustitia denegata vel protracta" - að neita um réttlæti eða tefja framgang þess, en algengast var þó að nota hugtakið Rechtsverweigerung sem mætti kalla réttarsynjun.31 Þessi hugmynd að það sé ekki á valdi dómara að túlka lög, hvað þá að setja lagareglur, birtist í Konungalögunum dönsku frá 14. nóvember 1665, sbr. III. gr. þar sem konungi einum er áskilinn réttur til að skýra lög.32 Þessu fylgdu valdboðnar eða autentískar lögskýringar, en að baki þeim virðist liggja sama hugsun og að baki referé legislatif. Eitt frægasta dæmi um slíka skýringu er tilskipun 9. febrúar 1798 um áritun afborgana á skuldabréf. Tilskipun þessi er valdboðin skýring á ákvæði Norsku laga frá 1687 5-13- 54 og Dönsku laga frá 1683 5-14-56, en í þeim ákvæðum segir svo: Naar noget betalis paa een Haandskrift, eller Contract, enten af Hovedstoelen, eller Renten, eller og den gandske afbetalis, eller efterkommis, da skal Creditor og den, der samme Haandskrift eller Contract, med Rette i Hænde haver, det paa Brevene selv afskrive, eller npjagtig Quittantz derpaa give [...]. Hæstiréttur túlkaði regluna í Dönsku lögum árið 1766 þannig að lausum kvittunum fyrir afborgunum sem aðrir gæfu út en handhafi skuldabréfsins yrði ekki haldið fram gegn honum. Eftir þessu fordæmi höguðu menn sér í við- skiptum. Það olli því nokkru uppnámi þegar Hæstiréttur í dómi sem gekk árið 1796 túlkaði framangreint ákvæði Dönsku laga á þá lund að laus kvittun fyrir afborgun skuldara væri nægileg til að leysa hann undan greiðslu, þannig að sá sem síðar eignaðist kröfuna fyrir framsal yrði að tilkynna skuldara um framsalið. Hér gætti nýrra viðhorfa fyrir áhrif Rómarréttar þar sem traust- fangsreglur þekktust ekki, en annars er ekki ástæða til að fjölyrða um og einnig það að Hæstiréttur þekkti lítt til fyrri fordæma, enda voru þau ekki ýkja 30 Gomard: „Et retspolitisk program for dommerskabt ret“, bls. 48-49. Sjá einnig Jacob W.F. Sundberg: fr. Eddan t. Ekelöf. Repertorium om Rattskiillor i Norden. Studentlitteratur/Akademisk Forlag. Institutet för offentlig och intemationell ratt [1978], bls. 32 o.áfr., 142, 146-148. 31 A. Erler: „Rechtsverweigemng". Handwörterbuch zur deutschen Rechtsgeschichte IV, d. 415- 417. 32 „Skal derfor ogsaa Kongen alene have den höieste Magt og Myndighed til að gjöre Love og Forordninger efter sin egen gode Villie og Velbehag, at forklare, forandre, formere, formindske ja slet at ophæve forrige og af hannem selv eller af hans Forfædre udgivne Love“ [...]. Lögin eru birt í Lovsamling for Island I, bls. 298 o.áfr. 119
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.