Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 31

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 31
fyrir þá lögð og komast að niðurstöðu. Dómstólar eru háðir aðilum um það hvemig mál em lögð fyrir þá, löggjafinn hefur frjálsari hendur. Löggjafinn hefur rýmra svigrúm en dómstólar til athafna, en dómstólar þrengra. Þeir em bundnari af viðurkenndum réttarheimildum og lagahefð sem veitir þó engan veginn alltaf skýr svör, þannig að dómstólar verða að móta reglur úr þeim efnivið og jafnvel setja nýjar frá grunni þegar annað þrýtur. Sameiginlegt er að bæði dómstólum og löggjafa að báðir verða að gefa gaum afleiðingum ákvarðana sinna. Þetta verða dómstólar að gera, enda þótt viðfangsefni þeirra sé að skera úr afmörkuðum ágreiningi. Loks má benda á að dómstólar hafa allajafna skemmri tíma til að taka ákvörðun en löggjafinn.51 Þetta veldur því að lagareglur sem dómstólar móta eða setja eru í ýmsum greinum annars eðlis en þær sem löggjafinn setur bæði um uppruna og verkan. 13. LÝÐRÆÐISLEGT UMBOÐ DÓMARA Nú er komið að spurningunni um stöðu dómstólanna. Eins og sjá má af því sem nú hefur verið rakið eru andmælin við því að þeir setji reglur öðru fremur reist á því að þá skorti lýðræðislegt umboð og þá jafnframt lýðræðislega löghelgan. Og vissulega verður ekki fram hjá því litið. En áður en slík ályktun er dregin er nauðsynlegt að gefa eftirfarandi atriðum gaum: 1. Ekki gera of mikið úr lýðræðislegu umboði löggjafans og ábyrgð hinna kjömu fulltrúa gagnvart kjósendum eins og þegar hefur verið minnzt á. Einnig hefur verið vakin athygli á því að löggjöf í lýðræðisríkjum nú- tímans mótast mjög af málamiðlunum stjómmálaflokka og margs konar hagsmuna- og þrýstihópa. Vilji óbreyttra kjósenda er engan veginn ótví- ræður, enda hagsmunir þeirra dreifðir. Lýðræðislegt aðhald birtist helzt þegar ákvarða á eitthvað sem snertir áþreifanlega hagsmuni fjöldans.52 Og helzta úrræði til að koma til móts við slíkar kröfur er þá að efna til þjóðaratkvæðagreiðslna um afmörkuð efni. 2. Dómsvaldið er engan veginn sneytt lýðræðislegri löghelgan. Þá skipan má viðhafa að dómarar séu lýðræðislega kjömir eða hið pólitíska vald hafi sérstök áhrif á val þeirra svo sem er í Bandaríkjunum. Reyndar er álitamál hvort þetta tryggi lýðræði. Starf dómara er bundið við reglur, en ekki reikulan vilja kjósenda. Lýðræði þarfnast festu og hún er bezt tryggð með grundvallarreglum sem sækja sér lýðræðislega löghelgan til almennrar viðurkenningar þegnanna. í Evrópu er hins vegar leitazt við að draga úr beinum áhrifum stjómmálaafla á skipun dómsvaldsins og reyndar einnig á 51 Sjá nánar Sigurð Líndal: „Stjómskipulegt vald dómstólanna“. Tímarit lögfræðinga. 43. árg. (1993), bls. 115-16, Eckhoff: Rettskildelære, bls. 183 o.áfr. 52 Friedrich A. Hayek: Law, Legislation and Liberty. [...]. Volume 3. The Political Order of a Free People. [...]. Routledge & Kegan Paul. London and Hentley, bls. 1 o.áfr. J. Roland Pennock: „Majority Rule“. Intemational Encyclopedia of the Social Sciences, 9, bls. 536-69. Alfred de Grazia: „Representation". Samarit, 13, bls. 461-79. 125
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.