Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 32
stjórnsýsluna með vaxandi reglufestu. Eigi að síður þykir eðlilegt að stjórnarstofnanir þjóðfélagsins vinni saman og nokkurt samræmi sé í ákvörðunum þeirra, enda starfi þær í anda lýðræðis og standi vörð um grundvallarreglur réttarríkisins í víðtækari merkingu orðsins. Lýðræðislegt aðhald má tryggja, að minnsta kosti að nokkru leyti, með því að dómstólar rökstyðji niðurstöðu sína og leggi hana síðan fyrir almenningssjónir, bæði lærða og leika. Með þessu má segja að þeir standi þjóðfélagsþegnunum, þar á meðal lögfræðingum, og þá einkum lögmannastéttinni, sem trúnaðar- mönnum þeirra, reikningsskap gerða sinna og beri þannig sérstaka ábyrgð umfram aðrar stjómarstofnanir þjóðfélagsins. 3. Mikilsverður er sá háttur að fyrir dóm koma tveir jafnréttháir aðilar sem tala máli sínu beint og milliliðalaust við dómarann. Þannig geta þjóð- félagshópar sem annars eiga ekki mikið undir sér í skiptum við hið póli- tíska vald fengið áheym og ef til vill stuðning sem þeir geta ekki vænzt annars staðar. Þannig má nálgast útdeilingar- eða hið sértæka, einstakl- ingsbundna réttlæti þar sem sérstaklega er gefinn gaumur verðleikum hvers og eins. Með nokkurri einföldun má segja að löggjafinn þjóni jafn- aðarréttlætinu (justita commutativa), en dómstólar verðleikaréttlætinu (justita distributiva) og bæti þannig hvor annan upp. 4. Mikilvægt er fyrir viðgang lýðræðis að þegnar þjóðfélagsins hafi tilfinn- ingu fyrir því að eiga hlutdeild í ákvörðunum. Kosningaréttur til löggjafar- samkundunnar og beinn aðgangur að dómstólunum styrkir þessa tilfinn- ingu. En það kann þó að vera meira í orði en á borði, enda eru þessar stofn- anir einatt umluktar skrifræðishjúp og þegnunum jafnvel fjarri. Grund- vallarreglur senr almennt er viðurkennt að dómstólum beri að fylgja vinna þó gegn þessu. Hér er átt við að dómstólar séu óhlutdrægir, að þeir dæmi um ákveðna afmarkaða kröfu aðila sem hefur lögvarða hagsmuni af úrlausn, að þeir séu óháðir og aðilum séu veitt jöfn tækifæri til að tala máli sínu. Á þennan hátt er tryggð þátttaka þeirra sem hafa sérstakra hagsmuna að gæta í ákvörðunum um raunhæf og afmörkuð vandamál þjóðfélags- þegnanna. En jafnframt er dómstóllinn fjarlægur - jafnvel einangraður - sem merkir að hann er óháður duttlungum og þrýstingi margvíslegra þjóð- félagsafla. 5. Þeir dómar sem birtir eru, svo sem almennt tíðkast um dóma áfrýjunar- dómstóla, eru öllum sem óska aðgengilegir. Þannig eru þeir lagðir fram til umræðu og gagnrýni. Þetta tryggir aðhald lærðra og leikra. Hver einstakur dómur er þáttur í löngu ferli. Niðurstaða í tilteknu máli kann að orka tvímælis sem kostur er að leiðrétta síðar, annað hvort þannig að dómstólar hnika til réttarframkvæmd eða löggjafinn grípur inn, unz regla hefur verið mótuð skref fyrir skref í samræmi við reynslu. Þessari þróun má líkja við varfærnislega tilraunastarfsemi. Með þetta að leiðarljósi getur starfsemi dómstólanna verið lýðræðisleg, en 126
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.