Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Síða 48

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Síða 48
Ákvæði 11. gr. samkeppnislaga hljóðar svo eftir gildistöku laga nr. 107/2000: Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð. Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að: a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjams kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir, b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns, c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt, d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig við- bótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju. Fyrir þessa breytingu var misnotkun markaðsráðandi stöðu ekki bönnuð berum orðum fyrirfram í samkeppnislögum, heldur var aðeins hægt á grund- velli 17. gr. laganna að banna háttsemi eða hegðun sem fól í sér misnotkun á markaðsyfirráðum eftir á, þegar sýnt hafði verið fram á að hún hafi verið skaðleg í tilteknu tilviki. Ákvæði 11. gr. eins og það er eftir breytinguna er byggt á 54. gr. EES-samningsins og er efnislega sambærilegt við ákvæði í danskri, sænskri, finnskri, breskri og hollenskri löggjöf.26 Til þess að fyrirtæki geti fallið undir þetta ákvæði þarf það að vera markaðsráðandi. Þótt skilyrðið sé sambærilegt við það sem felst í 54. gr. EES-samningsins horfir afmörkun markaðarins, eðli málsins samkvæmt, við með öðrum hætti en samkvæmt því ákvæði. Þá er í íslenska ákvæðinu ekki gerð krafa um áhrif á viðskipti milli aðildarríkja EES-samningsins. Samkvæmt innlendum lagaviðhorfum telst fyrirtæki vera markaðsráðandi þegar það hefur þann efnahagslega styrkleika að geta hindrað virka samkeppni á þeim markaði sem máli skiptir og það getur að verulegu leyti starfað án þess að taka tillit til keppinauta, viðskiptavina og neytenda, sbr. orðskýringar í 4. gr. samkeppnislaga.27 Ýmsar fleiri reglur felast í gildandi samkeppnislögum sem ekki eru ræddar hér. Má nefna að í 12. gr. er að finna bann við samráði fyrirtækja um sam- keppnishömlur. I 13. gr. ræðir um takmarkanir á gildissviði 10. gr. og skilyrði um stærð fyrirtækjanna sem í hlut eiga og markaðsstöðu þeirra. I 14. gr. er fjallað um fjárhagslegan aðskilnað þegar um er að ræða opinbert fyrirtæki eða fyrirtæki sem starfa að einhverju leyti í skjóli opinbers einkaleyfis og í 16. gr. ræðir um undanþágur frá 10. og 12. gr. 26 Sama heimild, sbr. II. kafli almennra athugasemda í greinargerð og athugasemdir við 4. gr. frumvarpsins. 27 í athugasemdum við 4. gr. frumvarpsins er að finna ítarlegar skýringar við 4. gr. þess (11. gr. laganna). Ekki er ástæða til að endurtaka þær hér. 142
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.