Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Side 57

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Side 57
einhverju leyti.35 Af þessari dómaframkvæmd sýnist mega draga þá ályktun, þótt löggjafinn hafi hér vafalaust talsvert mikið svigrúm, að það sé samt ekki alveg ótakmarkað. Almennt má orða það svo að gera verði það sennilegt að úrræði þessi verði talin nauðsynleg (a.m.k. æskileg) vegna almannahagsmuna, m.a. vegna þess að styrkur fyrirtækis raski alvarlega samkeppni til tjóns fyrir samkeppnisaðila þess og neytendur og jafnvel fyrir efnahagslífið í heild. Ef brýnir efnahagslegir hagsmunir þjóðarinnar og almannahagsmunir yrðu taldir krefjast þess að unnt væri að skipta upp markaðsráðandi fyrirtækjum virðist óhætt að ganga út frá því að dómstólar myndu almennt ekki hnekkja því mati. Svarið við síðustu spumingunni verður þá það að unnt ætti að vera að útfæra heimildir af því tagi sem um ræðir í þessari grein í samkeppnislögum þannig að þær samræmist nefndum ákvæðum stjórnarskrárinnar. Taka verður fram að niðurstaðan sem hér hefur verið komist að er eingöngu lögfræðileg. Hvort æskilegt sé, frá hagfræðilegu eða viðskiptafræðilegu sjónar- miði, að samkeppnisyfirvöld hafi slíkar heimildir og hvort æskilegt sé að beita þeim og þá við hvaða aðstæður er allt annað mál. Hið almenna markmið með samkeppnislögum og lögum sem varða atvinnulífið almennt má orða svo að lög og almenn stefnumörkun eiga að auka hagsæld svo mest sem unnt er. Það er útbreidd skoðun hagfræðinga að hagsældin verði mest í samkeppni. Þetta er einnig í takt við þau meginstjómmálaviðhorf sem efst eru á baugi meðal vestrænna ríkja. Samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja eða staða á markaði vinnur gegn slíkum markmiðum og getur þannig verið andstæð almannahags- munum. Um gildi þess að skipta upp fyrirtækjum gegn vilja eigenda til að ná samkeppnislegum markmiðum er deilt meðal hagfræðinga, viðskiptafræðinga og annarra sem láta sig þetta varða. Skipting AT&T og svo aftur málaferlin vegna Microsoft hafa leitt mikillar rökræðu um gildi þess að ganga svo langt að skipta fyrirtækjum hreinlega upp með valdi. Margir em þeirrar skoðunar að ávinningurinn af uppskiptingu AT&T hafi verið verulegur og aukið mjög sam- keppni á fjarskiptasviðinu og það síðan leitt til lækkandi verðs til neytenda. Aðrir eru á þeirri skoðun að þessi aðgerð sem slík hafi engu skilað og eingöngu gert það að verkum að búnar voru til minni og óhagkvæmari rekstrareiningar. Lækkandi verð á fjarskiptaþjónustu héldist aftur á móti í hendur við betri og hagkvæmari tækni fyrst og fremst en ekki uppskiptingu AT&T. Hér verður ekki tekin afstaða til þessara deiluefna en bent á að á endanum mótast viðhorf manna til þessara mála að nokkru af stjómmálaviðhorfum þeirra. Þeir sem hafa mesta trú á markaðinum telja að markaðurinn sjálfur muni 35 Sjá t.d. dóm Hæstaréttar íslands 6. apríl 2000 í máli nr. 12/2000: Ákæruvaldið gegn Bimi Kristjánssyni, Svavari Rúnari Guðnasyni og Hymó ehf. í dóminum segir Hæstiréttur m.a. að „(r)íkir og augljósir almannahagsmunir em bundnir við vemdun og hagkvæma nýtingu fiskistofna á fslandsmiðum". Stuttu síðar í sama dómi segir: „Krefjast almannahagsmunir þess að frelsi manna til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni séu settar skorður af þessum sökum“. Eftir þessu að dæma meta dómstólar að nokkm marki hvort skilyrðinu um almannahagsmuni sé fullnægt. 151
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.