Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Qupperneq 69

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Qupperneq 69
gatnagerðargjald er mælt svo fyrir að við ákvörðun gatnagerðargjalds skuli miða við rúmmál byggingar, flatarmál hennar og/eða flatarmál lóðar. Tekið er fram að heimilt sé að hafa hverja þessara viðmiðana sem er, eina af þeim, tvær saman eða allar þrjár. Flatarmál og rúmmál byggingar skal reikna eftir ÍST 50 og miða við brúttóstærðir. I 3. mgr. 3. gr. laga nr. 17/1996 er sveitarfélögum einnig veittur sá kostur að miða gjaldið ekki við raunverulega stærð húss heldur við leyfilega stærð byggingar samkvæmt því skipulagi sem gildir fyrir viðkomandi lóð. í 6. gr. reglugerðar nr. 543/1996 er tekið fram að gatnagerðargjald verði ekki endur- greitt þótt minna sé byggt en gjaldið miðast við. A hinn bóginn er þar tekið fram að heimilt sé í tengslum við útgáfu byggingarleyfis að innheimta viðbótar- gatnagerðargjald ef stærð byggingar er umfram viðmiðun gatnagerðargjaldsins, þ.e. leyfilega stærð byggingar samkvæmt skipulagi. I 1. mgr. 3. gr. laganna er mælt svo fyrir, eins og í eldri lögum, að gatna- gerðargjald megi vera mismunandi eftir notkun lóðar, t.d. eftir því hvort um er að ræða lóð fyrir íbúðarhúsnæði, verslunarhúsnæði, iðnaðarhúsnæði o.s.frv. Þá er tekið fram að gjald af lóð fyrir íbúðarhúsnæði megi vera mismunandi eftir því hvort um sé að ræða lóð fyrir einbýlishús, raðhús, fjölbýlishús o.s.frv. Enginn af þessum flokkum má þó fara yfir lögbundið hámark fjárhæðar gatna- gerðargjalds senr nánar er að vikið í kafla 3.5. Samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laganna er einnig heimilt að innheimta gatnagerðar- gjald ef reist er nýtt hús á áður byggðri lóð að því er stækkuninni nemur. Sama gildir ef eldra hús er stækkað. I athugasemdum við 3. gr. frumvarps þess, er varð að lögum nr. 17/1996, er tekið fram að skilyrði slíkrar gjaldtöku sé þó vitaskuld að ekki hafi áður verið innheimt gatnagerðargjald sem tekur til slrkrar stækkunar.7 Þessi fyrirvari getur t.d. átt við þegar gatnagerðargjald hefur í upp- hafi verið tekið skv. 3. mgr. 3. gr. laganna af leyfilegri stærð byggingar sam- kvæmt því skipulagi sem gilti fyrir viðkomandi lóð og sú bygging, sem þá var reist, hefur verið minni en nam hinu heimila nýtingarhlutfalli. Ekki ætti því að greiða fyrir stækkun á húsi ef hún ásamt eldri byggingu rúmast innan leyfilegrar stærðar byggingar samkvæmt því skipulagi sem upphaflegt gjald var miðað við. Hið sama gildir ef hús brennur og byggt er nýtt hús á lóð sem rúmast innan leyfilegrar stærðar byggingar samkvæmt því skipulagi sem upphaflegt gjald var miðað við, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 543/1996. 3,5 Lögbundið hámark fjárhæðar gatnagerðargjalds Hámark gatnagerðargjalds er afmarkað á annan hátt í lögum nr. 17/1996 en gert var varðandi A-gatnagerðargjald í 2. gr. laga nr. 51/1974. Samkvæmt síðastnefndum lögum máttu A-gatnagerðargjald „nema allt að áætluðum meðal- kostnaði við að undirbyggja götu með tilheyrandi lögnum og slitlagi“. í lögum 7 Alþt. 1995-1996, A-deild, bls. 992. 163
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.