Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 74

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 74
I ljósi þess að gatnagerðargjöld eru tryggð með lögveðrétti fymast gjöldin á fjórum árum, sbr. 3. tölul. 3. gr. laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda. 3.9 Endurgreiðsla gatnagerðargjalds I 2. mgr. 1. gr. laga nr. 17/1996 er kveðið svo á að sé lóðarúthlutun aftur- kölluð, lóð skilað, byggingarleyfi afturkallað eða ekki nýtt af lóðarhafa, beri sveitarfélagi að endurgreiða gatnagerðargjald af viðkomandi lóð. í athuga- semdum við 1. gr. frumvarps þess, er varð að lögum nr. 17/1996, er tekið fram að í greininni komi fram tæmandi talning á þeim tilfellum þegar sveitarstjóm sé skylt að endurgreiða gatnagerðargjald.13 Ekki verður séð að þessi fullyrðing fái staðist. Þannig verður að ætla að sveitarstjóm bæri t.d. að endurgreiða gatna- gerðargjald ef ákvörðun sveitarstjórnar um úthlutun lóðar yrði ógilt með dómi. í 1. mgr. 6. gr. laganna er m.a. tekið fram að félagsmálaráðherra skuli setja nánari ákvæði í reglugerð um endurgreiðslu gatnagerðargjalds. í 2. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 543/1996 um gatnagerðargjald er tekið fram að endurgreiðslu gatnagerðargjalds, þegar lóðarhafi skilar lóð eða lóðarúthlutun er afturkölluð, sé heimilt að fresta þar til lóð er úthlutað að nýju en þó ekki lengur en í 6 mánuði. Frestur til endurgreiðslu er í öðrum tilvikum einn mánuður frá því að lóðarhafi krefst endurgreiðslu gatnagerðargjalds. I 3. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 543/1996 er tekið fram að gatnagerðargjald skuli endurgreitt og verðbætt miðað við vísitölu byggingarkostnaðar eftir því sem kveðið sé á um í gjaldskrá. I f-lið 11. gr. reglugerðarinnar er tekið fram að í gjaldskrá sveitarfélags skuli kveðið á um tilhögun endurgreiðslu gatnagerðar- gjalds, sbr. 9. gr. reglugerðarinnar. I Ijósi þess að nú er svo fyrirmælt að gjald skuli endurgreitt og verðbætt miðað við vísitölu byggingarkostnaðar ætti ekki lengur að vera hætta á að slíkt uppgjör verði jafn bersýnilega ósanngjamt og raun varð á í máli því sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar, H 1982 593. Þar hafði gjaldandi greitt helming gatnagerðargjalds hinn 18. janúar 1977, en gjaldið nam í heild kr. 1.160.044. Úthlutun lóðarinnar var afturkölluð og henni endurúthlutað til sama gjaldanda í mars árið 1978. Gjaldið var nú lagt á að nýju og liafði í millitíðinni hækkað vegna óðaverðbólgu. Nam gjaldið nú kr. 1.716.245. Gjaldandinn taldi að uppgjöri ætti að haga þannig að annað hvort ætti að færa honum til tekna með fullu álagi samkvæmt hækkun vísitölu bygg- ingarkostnaðar þær kr. 580.022, sem hann hafði greitt, eða sú greiðsla ætti að teljast lúkning á helmingi gatnagerðargjalds af lóð hans, svo sem það var ákveðið eftir endurúthlutun lóðarinnar. A þetta var ekki fallist. Gjaldandinn var hvorki talinn hafa sýnt fram á lagaheimild til að krefjast vísitöluálags á það fé né var talið unnt að líta svo á að þessi greiðsla hans, þótt hún hefði numið hálfu áætluðu gatnagerðargjaldi samkvæmt lóðarúthlutuninni í desember 1976, ætti 13 Alþt. 1995-1996, A-deild, bls. 991. 168
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.