Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Síða 89
EFTA/EES ríkin (ísland, Liechtenstein og Noregur) hafa tekið þátt í þessu
samstarfi frá upphafi. Sennilega þarf Island að taka til endurskoðunar úrlausn
neytendamála utan dómstóla af þessu tilefni.
Rísi ágreiningur um framkvæmd rafræns samnings skal leysa úr honum í
samræmi við réttarreglur staðfesturíkisins. Undanþága frá þessu er varðandi
neytendasamninga en neytandi á rétt á að úr ágreiningi um efndir samnings fari
samkvæmt lögum í búsetulandi hans. Þessar reglur er að finna í svonefndum
Rómarsáttmála um hvaða lög gilda um samningsréttarlegar skuldbindingar.6
Tilskipunin vísar til sáttmálans en EFTA ríkin, Island, Liechtenstein og Noregur,
eru ekki aðilar að honum.
Varðandi lögsögu dómstóla til að leysa úr ágreiningi er vísað til svonefnds
Brusselsáttmála um vamarþing, viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamál-
um. EFTA ríkin, þ.á m. Sviss, gerðu samhljóða sáttmála við ESB ríkin sem
nefnist Luganosáttmálinn. Nú hefur Brusselsáttmálinn verið gerður að reglu-
gerð ráðherraráðsins7 en hún fellur ekki undir EES-samninginn og verður því
ekki tekin upp í hann.
12. VIÐURLÖG
í 20. gr. segir að aðildarríki skuli ákveða viðurlög sem gildi um brot á
innlendum ákvæðum sem samþykkt verða samkvæmt tilskipuninni. í formála
með tilskipuninni segir að þeim beri þó ekki skylda til að ákvarða viðurlög á
sviði refsiréttar.
13. GREIÐSLUR
Öruggur greiðslumáti er lykilatriði fyrir þróun rafrænna viðskipta, einkum
neytendaviðskipta. Enn hefur ekki verið fundin hraðvirk, örugg og ódýr leið til
að greiða yfir landamæri. Umrædd tilskipun tekur ekki á þessu vandamáli.
Enn er algengast að greitt sé með kreditkorti fyrir viðskipti á netinu. Aður en
íslenskur þjónustuaðili getur tekið við greiðslum með þeim hætti þarf hann að
hafa til þess gerðan hugbúnað til að geta tengst rafgreiðslukerfinu (RAS) og
gera sérstakan samning við RAS-þjónustuna þar að lútandi eða eftir atvikum að
tengjast erlendu færslusöfnunarkerfi.
Verið er að þróa rafeyri til að hlaða í tölvur og snjallkort. ESB er með í
smíðum tillögur að því hvemig hamla má gegn misferli með og fölsun á öðram
greiðslumiðli en peningum.
6 The Rome Convention on the law applicable to contractual obligations, 19.6.1980.
7 Council Regulation No 44/2001 of 22 December 2000 on jurisdiction and the recognition and
enforcement of judgements in civil and commercial matters.
183