Ægir - 01.04.1996, Qupperneq 36
Tæknideild Fiskifélags íslands
24. maí á sl. ári kom skuttogariim Sindri VE 60 til landsins,
en þann dag kom skipið til Akraness. Skip þetta, sem áður hét
Snekkar Nordic, er smíðað árið 1984 (afhent í júní) fyrir Frakka
hjá Ateliers Et Chantiers De La Manche, Dieppe í Frakklandi,
smíðanúmer 1321 hjá stöðinni. Skipið varhannað og smíðað
sem fiakafrystitogari, og vélbúnaður er með flokkun fyrir vakt-
frítt vélarúm.
Þess má geta að Sindri VE er „systurskip" Orra ÍS (sama
grunnteikning), sem einnig var keyptur til landsins í ntaí á sl.
ári og er einnig smíðaður lijá Ateliers Et Chantiers (smíðanúm-
er 1322), en lijá stöðinni í St. Malo. Helsti munur á skipunum
er að Sindri er heldur grynnri (minni dýpt að þilförum), auk
þess sem innra fyrirkomulag er nokkuð frábrugðið. Umrœdd
stöð hefur aldrei smíðað fiskiskip fyrir íslendinga, en auk þess-
ara tveggja hafa fimm skuttogarar verið keyptir til landsins,
sem smíðaðir hafa verið hjá stöðinni, þar af tveir þeir fyrstu,
Barði NK (1137) og Hólmatindur SU (1138). Hinir þrír voru
Hegranes SK (1145), Freyja RE (1441) og Sigurey SI (1507).
Allir þessir fimm skuttogarar voru smíðaðir hjá stöðinni í
Dieppe eins og Sindri.
Eftir að skipið kom til landsins voru gerðar ákveðnar endur-
bœtur á skipinu hjá Þ&E hf. á Akranesi. Helstu breytingar voru
þœr að í skipið var settur nýr fiskvinnslubúnaður, skutrennu-
loki, gerðar ákveðnar breytingar á íbúðum, bœtt við þremur
smávindum og kapalvindu, nýtt vökvaþrýstikerfi fyrir vinnslu-
biinað, lúgubúnað, smávindur o.þ.h., bœtt við tœkjum í brú
o.fl. Eftir umrœddar endurbœtur hélt skipið til veiða utan land-
lielgi, en vegna bilunar í niðurfœrslugír var skipið frá veiðum
fram í febrííar sl., er skipið fœr veiðileyfi innan landhelginnar.
Sindri VE er í eigu Mels hf. í Vestmannaeyjum, en að því
fyrirtœki standa Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum og Meit-
illinn hf. í Þorlákshöfh. Skipstjóri á Sindra VE er Helgi Ágústs-
son og yfirvélstjóri Hlynur Ingimarsson. Framkvœmdastjóri út-
gerðar er Sighvatur Bjarnason.
Almenn lýsing
Almennt: Skipið er smíöað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Bureau Veritas í flokki * I 3/3 E, Fishing Vessel
Deep Sea, Ice II, * MOT, AUT (RMC, Quick Freezing Plant).
Skipið er skuttogari með tvö heil þilför milli stafna, skut-
rennu upp á efra þilfar, hvalbak á fremri hluta efra þilfars og
íbúðahæð og brú aftantil á hvalbaksþilfari.
Rými undir neðra þilfari: Undir neðra þilfari er skipinu
skipt með vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rými,
talið framan frá. Stafnhylki (þurrgeymir); hágeyma fyrir
brennsluolíu ásamt sónarklefa; lestarrými (fiskilest) með
36 ÆGIR