Ægir - 01.11.1998, Qupperneq 38
H. Hauksson selurfmnsk iðnaðarhús og frystiklefa:
Gott húsnæði mikilsvert í
matvælaframleiðslunni
Nýbygging fiskvinnslufyrirtœkisins Nýfisks í Sandgerði.
TTeildvershmin H. Hauksson hefur
11 í nokkur ár selt innflutt iðnað-
arhús, m.a. til fiskvinnslufyrirtœkja,
og þessa dagana er unnið að uppsetn-
ingu á fyrsta frystiklefanum sem fyr-
irtœkið flytur inn. Þá flytur fyrirtœk-
ið einttig inn iðnaðarhurðir frá Mock
Doors og Mesvac Doors. Allar eiga
þessar vörur það sameiginlegt að
kottta frá Finnlandi ett Haukur
Hauksson, eigandi H. Haukssottar
ehf., segir að finnskar fratnleiðsluvör-
ur séu vandaðar og ttppfylli vel kröf-
ur í tslensku atvinnulífi.
Heildarlausnir í iðnaðarhúsum
„í iðnaðarhúsunum er um að ræða
stálgrindarhús frá Weckman Steel sem
fást í ýmsum stærðum og gerðum,
óeinangruð eða fullfrágengin að utan
sem innan. Þannig má telja húsin
heildarlausnir og er hér um að ræða
mjög hagstæðan byggingarmáta, bæði
hvað varðar verð og stuttan bygging-
artíma. Það er mikils virði," segir
Haukur en mörg hús frá Weckman
Steel hafa verið byggð við sjávarsíðuna
sem og í sveitum, m.a. hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjunum Geflu á Kópaskeri,
Ingimundi á Siglufirði, Bylgju í Ólafs-
vík, Arnarfiski og Frostfiski í Reykja-
vík, Nýfiski í Sandgerði og tvö hús
hafa verið byggð í Garðinum.
Húsin hlekkur
í framleiðslu á gæðavörum
„í iðnaðarhúsunum hefur verið um að
ræða hús á stærðarbilinu 300-1000 fer-
metrar og mér sýnist menn sjá hag-
kvæmni í því að byggja á þessu stærð-
arbili. Góð nýting er lykilatriði en mér
sýnist að í greininni séu allir að kepp-
38 ÆGiIIR ------------------------
ast við að uppfylla kröfur vegna fram-
leiðslu á matvælum úr sjávarfangi og
þar skiptir gott húsnæði miklu máli.
Almennt finnst mér ágætur fram-
kvæmdahugur í mönnum í sjávarút-
veginum um þessar mundir," segir
Haukur.
Frystiklefi settur upp í Garðinum
í kjölfar sölu á húsum til sjávarútvegs-
fyrirtækja leitaði fyrirtækið að vönd-
uðum frystiklefum til að flytja inn og
bjóða á markaðnum. Enda er það svo
að hjá flestum matvælaframleiðend-
urm eru frysti og kæliklefar ómissandi.
„Ég fékk umboð fyrir frystiklefa frá
finnska framleiðandanum Huurre
Group og núna er verið að setja upp
fyrsta klefann þessarar gerðar hjá K.
Helgasyni í garðinum en þeir byggðu á
þessu ári stálgrindarhús frá Weckman
Steel. Mér kæmi ekki á óvart að sala
ætti eftir að verða góð í klefunum,"
sagði Haukur Hauksson.
í lokin má geta þess að H. Hauksson
ehf. seldi Skipasmíðastöð Njarðvíkur á
þessu ári hurð frá Mock Doors fyrir
hið nýja skipaskýli fyrirtækisins en
hurðin er engin smásmíð því hún er
12x25 m á stærð og opnar þannig all-
an gafl hússins.
Iðnaðarhurðir frá Mesvac.