Ægir - 01.11.1998, Qupperneq 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Vélfag ehf. í Ólafsfirði:
Sérhanna lausnir fyrir
Baader fiskvinnsluvélar
Bjarmi Sigurgarðarsson, lengst til vinstri, ásamt starfsmönn-
um sínum, þeim Andra Lárussyni og Halldóri Guðmundssyni,
við Baader-flökunarvélina.
'MJyrírtœkið Vélfag
-l ehf. í Ólafsfirði er
eitt hitina ungu þjótt-
ustufyrírtœkja í sjáv-
arútvegi í landittu.
Hjá Vélfagi eru að
jafnaði fittiiti starfs-
metm og sitttia þeir
viðhaldsþjótiustu við
fiskvinnslur og togara,
sér í lagi viðhald og
utnsjón ttteð Baader-
fiskvitinsluvéluin.
Flestir starfsinenn fyr-
irtcekisitis hafa starfað
sent Baader-mentt utn
borð í vinnsluskiputn
eða hjá fiskvititislufyr-
irtœkjum og þessi sérþekking er nýtt t
fyrirtœkinu til að hattna lausnir við
Baader-vélar, íþeittt tilgangi að gera
umhirðu þeirra og notkun hagkvœttt-
ari. Vélfag ehf. fratttleiðir ttú ntarga
íhluti í Baader-fiskvinnsluvélar og er
þessa dagatta að Ijúka endurbygging
á Baader-flökunarvél sem gerð hefur
verið upp frá gruntti.
„Við erum einnig byrjaðir að smíða
flökunarvél úr ryðfríu stáli en álið sem
er í vélum í dag tærist í seltunni og
kallar þess vegna á mikið viðhald,"
segir Bjarmi Sigurgarðarsson, fram-
kvæmdastjóri Vélfags ehf. Hann er
fyrrverandi Baader-maður af togaran-
um Mánabergi ÓF en hætti á sjónum
og ákvað að nýta þekkingu sína til að
reyna fyrir sér í þjónustu við Baader-
vélar, jafnframt smíði á íhlutum.
„Við byrjuðum með fyrirtækið árið
1995, þá með smíði á hausara í huga,
og einnig var markmiðið að þróa
lausnir fyrir Baadervélarnar sem gerðu
þær auðveldari í umhirðu og viðhaldi.
Það hefur gengið vonum framar og
erum við komnir með þó nokkuð af
vörum sem við framleiðum sjálfir. Við
höfum notið þess að eiga gott samstarf
við útgerðirnar og fiskvinnslurnar hér
í Olafsfirði og þess vegna koma vörur
frá okkur ekki á markað fyrr en þær
hafa verið þaulprófaðar. Sem dæmi
prófuðum við plastbrautirnar í 189
vélarnar í 3 ár áður en við settum þær
á markað, en þær hafa reynst einstak-
lega vel."
{ Baader-flökunarvélunum eru ál-
brautir sem með tímanum hafa viljað
tærast og þrútna en Vélfag hefur nú
þróað nýjar brautir úr sérframleiddu
harðplasti sem skilað hafa góðum ár-
angri. Auk þessa hefur Vélfag endur-
hannað fráfærsluböndin sem taka við
flökunum frá hnífunum. í stað búnað-
ar frá framleiðanda settu Vélfagsmenn
bönd úr ryðfríu stáli og plasti og eru
þau þannig hönnuð að hægt er að
taka böndin af vélinni með einu
handtaki, sem þykir mikill kostur til
að geta komist að öðrum búnaði vélar-
innar til viðhalds og þvotta.
Sömuleiðis hefur Vélfag hannað
svokallað efra hnífastykki í Baader-
flökunarvélar og byggt það þannig
upp að hægt er auðveldlega að stilla
skurðstöðu hnífanna. Það atriði á að
skapa möguleika til aukinnar nýtingar
á fiskinum í flökuninni. Loks er að
geta nýrrar rennu sem þeir Vélfags-
menn hönnuðu á vélina en hún hefur
það hlutverk að skila fiskinum á réttan
hátt á roðflettivélina Þessi lausn segir
Bjarmi að hafi sparað einn mann við
flökunina þar sem rennan hefur verið
reynd.
„í vélbúnaði eins og flökunarvélun-
um, sem heilu fiskvinnslufyrirtækin
og togararnir byggja á, þá er grund-
vallaratriði að viðhaldið sé auðvelt.
Fyrirbyggjandi viðhald borgar sig og
ekki hvað síst er það mikilvægt þegar
um er að ræða skip úti á sjó," segir
Bjarmi Sigurgarðarsson hjá Vélfagi
efh.
Bjartni með brautirnar fyrir Baader-vél-
arnar sem Vélfag eltf. hannaði. Brautirnar
eru úr sérblönduðu plastefiti sem Itefur
mikla endingu.
AGÍR 37
Ióhann Ólafur Halldórsson