Ægir - 01.11.1999, Qupperneq 6
Slagurinn um Kvótaþingið
Miðað við þann tón sem gefinn hefur verið að undanfórnu lijá stofnunum sjómanna,
útvegsmanna og fiskverkenda, stejiiir í að tekist verði á wn Kvótaþing í komandi
kjaraviðrœðum.
'KJú í aðdraganda kjarasamninga
1 \ iná Ijóst vera að tekist verður á
um Kvótaþing og afleiðingar þess fyr-
ir sjávarútveginn. Að undanfórnu
hafa verið haldnir fundir hagsmuna-
samtaka sem sent liafa frá sér sam-
jrykktir sem fJestar eiga það sam-
merkt að minnast með einum eða
öðrum hœtti á Kvótaþingið. Á það að
vera eða fara? Var tilkoma þess til
góðs eða ills?
Samtök fiskvinnslustöðva ályktuðu
á sínum aðalfundi um Kvótaþingið og
óskuðu þar eftir að lög um þingið yrðu
endurskoðuð með það fyrir augum að
starfsemin yrði lögð niður hið fyrsta.
„Áhyggjur þær sem fram komu í
ályktun síðasta aðalfundar SF um að
starfsemi Kvótaþings mundi raska
starfsumhverfi fiskvinnslunnar hafa
reynst réttar. Fundurinn telur að opin-
bert eftirlit með skiptaverði sé fylli-
lega tryggt með starfsemi Verðlags-
stofu skiptaverðs. Það er með öllu
ólíðandi fyrir íslenskan sjávarútveg að
starfsemi Kvótaþings hefti eðlileg við-
skipti fyrirtækja og trufli með þeim
hætti hráefnisöflun fiskvinnslunnar."
LÍÚ vill þingið burt
í sama streng tók aðalfundur LÍÚ í
samþykkt sinni og sagði Kristján Ragn-
arsson í setningarræðu þingsins að
gagnrýni samtakanna á Kvótaþing
hafi gengið eftir.
„Við töldum það skaðlega íhlutun
að lögbinda viðskipti með aflaheimid-
ir við slíka ríkisstofnun auk þeirrar
mismununar sem það myndi leiða af
sér. Þeim, sem eiga tvö skip eða fleiri,
leyfist að flytja hindrunarlaust milli
skipa, eins og eðlilegt er, en sá sem á
eitt skip verður að fara í gegnum þann
6 Mm---------------------------
svarta kassa sem einkennir þetta
Kvótaþing. Slík mismunun er með
öllu óþolandi."
Annar tónn í sjómönnum
Á formannafundi Sjómannasam-
bandsins á dögunum kvað við nokkuð
annan tón í garð Kvótaþings þó for-
maður Sjómannasambandsins hafi
áður lýst yfir að Kvótaþing sé ekki
heilagt í augum sjómanna ef ná megi
sátt um leið í myndun fiskverðs og að
það kvótabrask, sem þeir kalla svo,
verði upprætt. Formannafundurinn
ályktaði einnig um Kvótaþingið og
sagði þar:
„Formannafundurinn telur að
Kvótaþing verði að starfrækja, svo
lengi sem Alþingi heimilar útgerðar-
mönnum að versla með verðmæti sem
þeir ekki eiga. Með tilkomu Kvóta-
þings fullyrða útgerðarmenn að leigu-
verð á kvóta hafi hækkað umtalsvert,
sem er alrangt. Kvótaverð hefur hald-
ist í hendur við hækkun afurðaverðs.
Kvótaþingið eitt og sér dugir hins veg-
ar ekki til að koma í veg fyrir þátttöku
sjómanna í kvótakaupum útgerðarinn-
ar. Þrátt fyrir jákvæða afstöðu til
Kvótaþingsins áréttar fundurinn þá
skoðun aðildarfélaga Sjómannasam-
bands íslands að afnema eigi heimildir
útgerðarmanna til að framselja afla-
mark af skipum sínum. Veiðirétturinn
á að vera afnotaréttur og ekkert um-
fram það. Fundurinn telur að í hag-
ræðingarskyni eigi að heimila flutning
á aflamarki milli skipa í eigu sömu út-
gerðar og jöfn skipti aflamarks milli
tegunda, en að öðru leyti verði flutn-
ingur aflamarks milli skipa bannaður."