Ægir - 01.11.1999, Page 7
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Guðbergur Rúnarsson, ritstjóri Sjómannalmanaksins 2000 kynnir nú nýtt og
endurbætt rit í tilefni af 75 ára afmæli útgáfunnar.
Sjómannaalmanakið 2000 og Islensk skipa- og hafnaskrá:
Endurbætt almanak
á gömlum grunni
„Það er óhætt að segja að Sjómanna-
almanakið 2000 og íslensk skipa- og
hafnaskrá, sem Fiskifélagsútgáfan sendir
nú frá sér sé gjörbreytt útgáfa að formi og
útliti. Allt efni bókanna hefur verið
stokkað upp, skýringamyndir endurgerðar
auk þess sem nýir efnisþættir bætast við.
Þetta er því breytt bók á gömlum gmnni",
sagði Guðbergur Rúnarsson, ritstjóri Sjó-
mannaalmanaks Fiskifélags íslands en 75.
árgangur þessa merka rits er að koma út
þessa dagaha í nýjum og glæsilegum bún-
ingi.
Guðbergur sagði að Sjómannaal-
manakinu sjálfu væri nú skipt upp í 11
meginkafla og gerði það efni bókarinnar
mun aðgengilegra en áður var. „Við
aukum talsvert við efni og má nefna ítar-
lega kynningu á aðildarfélögum Fiski-
félagsins og aukinn og endurbættan kafla
um íslenska nytjafiska með frábærum
teikningum Jóns Baldurs Hlíðbergs. Þá em
aðrir kaflar rækilega yfirfarnir, kort endur-
gerð og síður endurhannaðar."
Eins og áður er bókin tvískipt og fylgir
með Almanakinu sérstök skipa- og hafna-
skrá. Það bindi er einnig endurbætt að
flestu leyti og er þar að finna 300 nýjar
myndir af skipum og bátum svo og upp-
lýsingar um úthlutaðan aflakvóta á hvert
skip. Þá er kaflinn um íslenskar hafnir
endurbættur, m.a. með nýjum myndum af
flestum bæjarfélögum á ströndinni eftir
Mats Wibe Lund og afar vel útfærðum
götukortum af hverjum stað eftir korta-
gerðarmanninn Sigurgeir Skúlason.
„Sjómannalmanak Fiskifélags íslands er
eins og allir vita eitt af gmndvallarritum
sem þurfa og eiga að vera um borð í hverju
íslensku fiskiskipi. Fiskifélagið hefur annast
þessa útgáfu í þrjá aldarfjórðunga og á bak
við vinnslu hennar liggur ómæld vinna
kynslóðanna. í tilefni af 75 ára afmæli
ritsins höfum við viljað vanda betur til
verksins en nokkm sinni fyrr og við
vonum að afmælisbúningurinn fari þess-
um síunga öldungi vel.
jHEVTINGUR
Varar við afkomunni
Eitt helsta uppsjávarfiskvinnslufyrir-
tæki landsins, SR-mjöl, hefur gefið
út viðvörun þar sem stefnir í mun
lakari afkomu á síðari hluta ársins
en gert hafði verið ráð fyrir. Rólegt
hefur verið yfir loðnuveiðunum í
haust og spilar sú staðreynd mjög
stórt hlutverk í afkomu SR-mjöls,
sem og annarra fyrirtækja í sömu
grein. Hins vegar hafa mörg
uppsjávarfyrirtækjanna átt mögu-
leika til að bæta sér upp skaðann
með veiðum á kolmunna, sem og
síldveiðum og -vinnslu.
Þorsteinn styrkir
stöðu sína í SH
Ránarborg ehf. sem er í eigu
Þorsteins Vilhelmssonar á Akureyri,
eins af aðaleigendum Samherja, hef-
ur aukið eignarhlut sinn í Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hf. um
2,07% og er eignarhlutur Ránar-
borgar nú 7,02% en var 4,95% áður.
Fyrir skömmu færði Þorsteinn veru-
legan eignarhluta í Samherja yfir í
þetta nýja félag sitt en fram til þessa
hefur Ránarborg fyrst og fremst lát-
ið til sfn taka með kaupum á eignar-
hlutum í Hraðfrystihúsinu Gunn-
vöru og Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. I síðarnefnda félaginu á Þor-
steinn nú hátt í hálfan milljarð að
markaðsvirði.
VG,IR 7