Ægir - 01.11.1999, Qupperneq 10
Grétar Mar Jónsson, nýrforseti FFSÍ:
Okkar gagnrýni á kvótakerfið
hefur reynst vera réttmæt
Grétar Mar Jónsson, skipstjóri í
Sandgerði, hefnr nú sest í stól
forseta Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands og teknr við á
þeim tímapunkti þegar í liönd fara
kjarasamningar. Því karpi er Grétar
Mar ekki ókunnur því hann hefur
starfað lengi innan FFSÍ, sem for-
maður Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagsins Vísis á Suðurnesjum, félags
sem talsvert hefur látið að sér kveða í
umrasðunni. Grétar segir þetta fjórðu
kjarasamningaviðrœðurnar sem
hann taki þátt í og segir fyrsta vers
að itá niðurstöðu í kjarasamninga í
stað þess að kjaraviðrceðum sjó-
manna og útvegsmanna verði lokið
með lagasetningu.
„Vinna við undirbúning kjarasamn-
ingaviðræðna er fyllilega hafin og
Viljwn umfram allt ná niðurstöðu í
verðmyndunarmálin í ncestu samninga-
lotu," segir Grétar Mar.
10 Mcm
þing okkar hjá FFSÍ var liður í kjara-
málunum," segir Grétar í samtali við
Ægi. Ffann segir að kröfugerðin komi
til með að snúa m.a. að lífeyrissjóðs-
málum, hækkun kauptryggingar og
hinum margfrægu verðmyndunarmál-
um. Á þeim þröskuldi segir Grétar Mar
samningagerð hafa stoppað að undan-
förnu og því sé meginmálið að komast
yfir þennan þröskuld. En mun slagur-
inn snúast um Kvótaþingið?
„Kvótaþingið hefur ekkert gert fyrir
okkur en hefur ekki sérstaklega verið
fyrir okkur heldur. Það eru aðrir þættir
sem hafa kannski meiri áhrif á okkur,
til að mynda veiðiskyldan en hún or-
sakar að menn verða að veiða 50% af
sínum kvóta. Verðlagsstofa skiptaverðs
hefur heldur ekki þróast eins og marg-
ir reiknuðu með. Mér fannst Verðlags-
stofa taka of mikið mið af gömlu lágu
fiskverðssamningunum en ekki taka
nægjanlegt tillit til markaðsverðs og
þar af leiðandi var sama lága fiskverð-
inu haldið áfram. Ég held þess vegna
að það sé ekkert sérstakt keppikefli við
næstu kjarasamningagerð að halda í
þessar tvær stofnanir en við viljum
umfram allt ná niðurstöðu í verð-
myndunarmálin," segir Grétar Mar.
Aflinn verði verðmyndaður
á mörkuðum
Sú krafa kom frá þingi Farmanna- og
fiskimannasambandsins að verð-
mynda skuli allan sjávarafla um fisk-
markaði. Fivað þetta atriði varðar er
ekki að sjá annað en samhljómur sé
með sjónarmiðum Sjómannasam-
bands íslands.
„Þessu til viðbótar sendum við ríkis-
Grétar Mar Jónsson, skipstjóri í Sandgerði
og nýkjörinn forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands. „Meðal fýrstu
verkefiiaima í nýja starfinu að undirbúa
nœstu kjarasamninga."
stjórn íslands áskorun um að veiðar
og vinnsla verði aðskilin. Það er hluti
af því skrefi að fiskur fari í gegnum
fiskmarkað," segir Grétar. Hann telur
einkennilegt að ekki sé hægt að verð-
mynda fisk í frjálsum viðskiptum þeg-
ar frelsið sé ráðandi í flestum öðrum
greinum atvinnulífsins. Varla sé við
öðru að búast en breyting verði þarna
á - einungis spurning hvenær að þeim
tímapunkti komi.
Vonast eftir góðu samstarfi við
önnur samtök sjómanna
Grétar Mar vill engu spá um fram-
vindu í kjarasamningaviðræðum.
Hann segir hana ráðast mjög af við-