Ægir - 01.11.1999, Page 16
Alþjóðavœðing og samstarf yfir landamæri
„Ég held að á alþjóðavettvangi sé litið á
okkur sem þjóð í fararbroddi í umhverfis-
málum sjávarútvegsins. Til dœmis vekur
það alltafjafh mikla undrun að það skuli
vera samtök útvegsmanna sem berjist fyrir
því að mótuð sé langtímastefha í skyn-
samlegri nýtingu fiskistofna," segir
Kristján Þórarinsson.
Brautryðjendur í umræðunni
um umhverfismál
og sj ávarútveg
- segir Kristján Þórarinsson, stofnvistfrœðingur hjá LIU
au eru ekki mörg alþjóðaverkefn-
in sem við sem hagsmunasamtök
útgerðarmanna komum að með bein-
um hcetti, en LÍÚ veitir hins vegar
stjómvöldum gjarnan ráðgjöfvið
gerð ýmissa alþjóðasamninga og við
tökum sœti í sendinefndum íslands,
t.d. í NAFO og NEAFC. Á þann hátt
eru störf á alþjóðavettvangi orðin lið-
ur í okkar starfsemi en því til viðbót-
ar höfum við talsverö samskipti við
systursamtök okkar í öðrum löndum,
kynnum þeim hvað við erutn aðgera
og frœðumst um þeirra starfum
leið," segir Kristján Þórarinsson,
stofnvistfræðingur Landssambands
íslenskra útvegsmanna. Kristján tel-
ur að á alþjóðavettvangi muni ís-
lendingar meira láta til sín taka
vegna umrœðunnar um umhverfis-
merkingar fiskafurða og heildarum-
rœðu um umhverfismál.
„Hér innanlands höfum við unnið
talsvert að umhverfismálunum og
erum þar í brautryðjendastarfi hvað
sjávarútveginn snertir. Ég held að á al-
þjóðavettvangi sé litið á okkur sem
þjóð í fararbroddi í umhverfismálum
sjávarútvegsins. Til dæmis vekur það
alltaf jafn mikla undrun að það skuli
vera samtök útvegsmanna sem berjist
fyrir því að mótuð sé langtímastefna í
skynsamlegri nýtingu fiskistofna.
Þetta hafa fleiri gert í orði en alls ekki
á borði. Sömuleiðis marka íslenskir út-
vegsmenn sér mikla sérstöðu með ein-
dregnum stuðningi við rannsóknir og
sérstaklega veit ég að meðal erlendra
vísindamanna þykir þetta sérstakt.
Þetta er ástæða þess að við getum
hreinlega farið út í verkefni eins og
upplýsingaveitu sjávarútvegsins, sem
sjávarútvegsráðuneytið hefur haft for-
göngu um að koma upp á Netinu. Við
höfurn frá athyglisverðum hlutum að
segja á alþjóðavettvangi og eigum að
segja frá þeim," segir Kristján.
Á íslensku sjávarútvegssýningunni
fyrr í haust dreifði Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna bæklingi sem
semtökin létu gera í því skyni að
kynna fiskveiðistjórnun hér á landi og
koma árangri af henni á framfæri,
bæði hér innanlands og ekki síður er-
lendis. Þessu kynningarefni segir Krist-
ján að hafi verið vel tekið og það not-
að af íslenskum fyrirtækjum og stofn-
unum sem samskipti hafa við sam-
starfsaðila eða viðskiptamenn sína er-
lendis.
„Fyrirtækin og stofnanirnar hafa
leitað til okkar eftir þessum bæklingi
og fengið að nota hann í sinni kynn-
ingu á íslandi og íslenskum sjávarút-
vegi. Þetta er dæmi um það hvernig
við komum íslenskum aðilum til að-
stoðar í sínum verkefnum erlendis,"
segir Kristján Þórarinsson.
16 M2R