Ægir - 01.11.1999, Side 19
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Athugasemd
frá framkvæmda-
stjóra FÍ
Undirritaður
vill koma á fram-
færi eftirfarandi
athugasemd og
ábendingum
vegna greinar
Nils Torsvik.
Meginefni
leiðarans, sem
ritstjóri Fiskaren
gerir athugasemd
við, var að Norð-
menn, íslendingar og aðrar þjóðir
sem eiga sameiginlega hagsmuni
þurfi að vinna saman og að þessar
þjóðir megi ekki láta skekkta mynd,
sem fjölmiðlar gjarnan draga upp af
átakamálum trufla slíka samvinnu. í
leiðaranum var m.a. tekið dæmi um
hvernig lesendur Fiskarens hljóta að
draga ályktun af Österbrismálinu
miðað við hvað þeir gátu lesið um í
blaðinu (ekki bara í leiðurum og
fréttagreinum).
Nils Torsvik hefur það sér til af-
sökunar að geta ekki lesið íslensku
og því þurft á milligöngumanni að
halda við lestur leiðarans. Eg vil hins
vegar benda lesendum Ægis á að
lesa yfir leiðara septemberblaðsins.
Þá sjá lesendur að skoðanir Nils
Torsvik og mínar fara að verulegu
leyti saman og að viðbrögð starfs-
manna Fiskaren, Nils Torsvik hér í
Ægi1 og Magnúsar Hafsteinssonar í
Morgunblaðinu nýlega, við þessum
leiðara voru umtalsvert ofsafengnari
en leiðarinn gaf tilefni til
Pétur
Bjamason
Pétur Bjarnason
Grandi og Þormóður rammi-Sæberg
hafa eignaskipti
Grandi hf. hefur selt Þormóði ramma-Sæbergi hf. 90,6% hlut sinn í Árnesi
hf. í Þorlákshöfn. Fyrirhugað er að sameina Árnes Þormóði ramma-Sæbergi og
halda áfram rekstrinum í Þorkákshöfn. Sölugengi hlutabréfanna var 1,51 en
Grandi eignaðist fyrr á þessu ári meirihluta í Árnesi eftir að félagið bauð
hluthöfum Árness að kaupa bréfin á genginu 1,30.
Samhliða þessu hefur Grandi keypt 15,2% af 20,2% hlut í Hraðfrystihúsinu-
Gunnvöru á Vestfjörðum. Fram kemur í tilkynningu frá félögunum tveimur, að
Árnes hafi á undanförnum mánuðum hagrætt í rekstri félagsins með sölu eigna
og fjárhagslegri endurskipulagningu. í kaupsamningi sé tekið fram að kaupanda
séu ljós þau fyrirheit sem Grandi hf. gerði um áframhaldandi rekstur Árness
þegar félagið eignaðist meirihluta í því og muni af fremsta megni leitast við að
framfylgja honum.
Árnes hefur sérhæft sig f veiðum og vinnslu á flatfiski og humri.
Aflaheimildir Þormóðs ramma-Sæbergs í skarkola séu tæplega 5% og muni þær
styrkja rekstur Árness.
Faxamjöl hf., dótturfélag Granda, keypti nýlega fiskimjölsverksmiðju í
Þorlákshöfn sem var í eigu þrotabús Hafnarmjöls. í tilkynningunni segir að
engin breyting hafi orðið á áformum um rekstur verksmiðjunnar. Þá kemur
einnig fram að Grandi muni áfram eiga rúmlega 20% hlut í Þormóði ramma-
Sæbergi.
Geir hættur hjá Marel
Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri
Marel hf. látið af störfum að eigin
ósk. Geir hefur verið forstjóri Marel
frá árinu 1987 og stýrt mikilli upp-
byggingu þess.
Stjórn Marel hf. hefur ráðið Hörð Arnarson
framkvæmdastjóra vöruþróunar og framleiðslusviðs Marei
sem forstjóra félagsins. Hörður er 38 ára rafmagnsverkfræð-
ingur að mennt og hefur starfað hjá Marel frá 1985.
Samruni Vaka og DNG formlega staðfestur
Með hluthafafundum í Vaka fiskeldiskerfum og DNG hefur samruni
félaganna formlega verið samþykktur. Félagið heitir Vaki-DNG og skipa stjórn
félagsins þeir Andri Teitsson, Þorsteinn I. Sigfússon, Sverrir Guðmundsson,
Vigfús Jóhannsson og Hjörleifur Jakobsson. Eftir sameininguna nemur
eignarhlutur Hampiðjunnar hf. í nýja félaginu yfir 22% eða um 14 milljónum að
nafnvirði.
GeirA. Gunn-
laugsson.
AGIR 19