Ægir - 01.11.1999, Blaðsíða 21
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Vilhelmína Vilhelmsdóttir:
Djúpfiska-
rannsóknir
r
við Island
- almennt yfirlit um stöðu þeirra
Inngangur
Þegar fjallað er um djúpfiska og djúp-
fiskarannsóknir, þarf vissulega að skil-
greina hvað átt er við. Veiðisögulega
séð eru ekki nema fáir áratugir síðan
farið var að veiða fisk á íslandsmiðum
á meira dýpi en 400-500 m. í raun er
það ekki fyrr en farið var að sækjast
eftir djúpkarfa og grálúðu að togað var
niður fyrir þetta dýpi en um þessi
mörk liggur landgrunnsbrúnin. Við
þetta dýpi miða flestir í nágranna-
löndum okkar einnig, þegar um djúp-
fiska er að ræða. Það gefur því að skilja
að lengi vel var lítið um að djúpfiskar
veiddust. Djúpfiskar slæddust þó í
veiðarfæri einstaka sinnum. Nú er
hinsvegar svo komið að sumar teg-
undir sem áður voru taldar sjaldgæfar
veiðast í töluverðu magni.
{ leiðöngrum Hafrannsóknastofn-
unarinnar á leiguskipum fyrir 1970
var sjaldan veitt á djúpslóð, eins og
hún er skilgreind í dag, enda leyfði
búnaður skipa það yfirleitt ekki. Við
komu r/s Bjarna Sæmundssonar, í árs-
lok 1970, opnuðust möguleikar til
slíkra veiða. Hins vegar biðu skipsins
mörg önnur brýn verkefni og því
gáfust lítil tækifæri til veiða á
djúpslóð. Eftir að kom fram á miðjan
áttunda áratuginn urðu tog á djúpslóð
hins vegar æ tíðari og þá oftast í
tengslum við rannsóknir á ákveðnum
tegundum. Yfirleitt voru „aukategund-
ir" skráðar en minna var um að líf-
fræðilegum gögnum væri safnað, enda
enginn mannskapur fyrir hendi til að
sjá um úrvinnslu slíkra gagna. Þó var
snemma farið að huga að gagnasöfn-
un varðandi einstaka tegundir, svo
sem gulllax og blálöngu. Með tíman-
um söfnuðust upp all mikil gögn um
marga djúpfiska, einkum hvað varðar
útbreiðslu þeirra og á hvaða dýpi þeir
væru.
í lok níunda áratugarins og í byrjun
þess tíunda vaknaði nokkur áhugi fyr-
ir djúpslóðinni, enda ýmsir mikilvægir
fiskstofnar á niðurleið. Voru þá gerð
drög að áætlun um djúpfiskarann-
Hafrannsóknir
sóknir þar sem hugmyndin var að
reyna að virkja togaraflotann í þessu
efni. Hugmynd þessi var m.a. kynnt á
Fiskiþingi árið 1992. Henni var yfir-
leitt vel tekið í byrjun en þegar til átti
að taka, þótti mörgum ýmsir agnúar á
að framkvæma slíka áætlun og var þá
alveg horfið frá henni.
Djúpfiskar tíndir úr „ostahali" um borð í b/v Kaldbaki í júní 1997. Það kemur oft mikill
svampur (kallaður „ostur") upp með vörpunni á djúpslóð.
AQOR 21