Ægir - 01.11.1999, Page 29
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
„Við höfum komið við sögu í flest-
um þeim verksmiðjum sem starfræktar
eru í rækjuiðnaði hér á landi í dag.
Flestar eru þær mjög vel tæknivæddar
og kannski ekki augljóst hvar sóknar-
færin liggja fyrir okkur í sölu búnaðar.
Þá kemur til sögunnar sú stefna okkar
að leggja fjármuni í vöruþróun og ný-
sköpun. Þá leið höfum við farið til að
mæta sveiflunum í rækjuiðnaðinum
og reyndar er það þannig að framleið-
endurnir sjálfir hafa verið óþrjótandi
uppspretta hugmynda sem við höfum
verið óhræddir að virkja. Með þessu
móti höfum við fundið lifibrauð okk-
ar," segir Jóhann og undirstrikar að í
rækjuiðnaðinum gildi að koma með
iausnir sem byggi á sjálfvirkni og því
að færri hendur komi að verki í rækju-
vinnslunni.
Með dótturfyrirtæki
■ Garðabæ
í fyrra stofnaði 3X-Stál dótturfyrirtæk-
ið Stálnaust í Garðabæ og framleiðir
það að hluta til fyrir móðurfélagið á
ísafirði. Þetta samspil segir Jóhann
hagkvæmt en lykilatriðið í þeirri sam-
vinnu sé að samgöngur hafi mjög far-
ið batnandi milli höfuðborgarsvæðis-
Karalyftari frá 3X Stáli. Vélvœðingin tek-
ur alls staðar við verkum, þar sem á ann-
að borð er hcegt að koma henni við.
í nýrri rœkjuverksmiðju á Nýfíindnalandi. Verksmiðjan var endurbyggð fyrr á þessu ári
og annaðist 3X Stál hönnunarþáttinn og smíði tœkja í verksmiðjuna. Framkvœmdastjóri
3X Stál segir hana eina þá fullkomnustu sinnar tegundar í heiminum í dag.
ins og Vestfjarða á undanförnum
árum. „Við erum með útibú úti á
landi, þ.e. í Garðabæ og erum bara
stoltir af því," segir Jóhann og er
nokkuð skemmt.
Aðspurður um kosti staðsetningar
3X-Stáls á ísafirði segir hann þá ótví-
ræða. Tengsl séu mikil við öflugar
rækjuverksmiðjur á svæðinu og það sé
mikils virði, ekki síst þegar byggt sé
svo markvisst á vöruþróun og nýsköp-
un, sem raun ber vitni hjá 3X Stáli.
Bolfiskvinnslan áhugasöm
Jóhann vill ekki upplýsa um sölu-
markmið næsta árs en segir stefnuna
upp á við. Hann segir að íslenska sjáv-
arútvegssýningin í Kópavogi hafi verið
góð kynning á fyrirtækinu á íslensk-
um markaði - og reyndar virðist sem í
tengslum við sýninguna hafi mönn-
um í bolfiskiðnaði opnast augu fyrir
þeim búnaði sem 3X-Stál bjóði og nýt-
ist jafnt bolfiskvinnslunni sem rækju-
iðnaðinum.
„Við kynntum t.d. karaþvottavél á
sýningunni, karalyftur og kara-
hvolfara. Síðan höfum við nú þegar
getið okkur gott orð fyrir færibanda-
kerfin okkar sem þykja léttkeyrandi og
sérstaklega auðveld í þrifum. Stað-
reyndin er sú að við erum með fram-
leiðslu á búnaði fyrir rækjuiðnaðinn
að fást við þann hluta fiskiðnaðarins
sem býr við hvað ströngustu kröfurn-
ar. Þess vegna gefur auga leið að góð
hönnun á tækjum fyrir rækjuiðnaðinn
nýtist líka í mörgum tilfellum fyrir
bolfiskvinnsluna, bæði í landi og á
sjó," segir Jóhann.
í vetur mun 3X-Stál taka þátt í sjáv-
arútvegssýningum í Boston í Banda-
ríkjunum, sem og í Brussel. Meðal þess
sem nú er að koma nýtt á markað frá
3X-Stáli eru stórir og öflugir skelblás-
arar sem eru með færibændi en eru
ekki með hefðbundnum hristibúnaði.
Sömuleiðis hefur 3X-Stál nýlokið við
smíði á nýju tæki til glasseringar en í
stað hefðbundins hristara er notuð
sérstök gerð af færibandi. Fyrsta
glasseringartækið er þegar selt til
Noregs og annað er í smíðum og þetta
segir Jóhann einmitt vera dæmi um
hvernig 3X-Stál þrói ný tæki inn í
framleiðslulínu sína sem svari þeim
þörfum sem markaðurinn hefur.
ÆCilU 29