Ægir - 01.11.1999, Qupperneq 31
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Kvótabók
F iskifélagsútgáfunnar
s
/liðnum septembermánuði gaf
Fiskifélagsútgáfan út Kvótabókina
1999/2000. Skuldlausir áskrifendur
Ægis hafa vonandi fengið bókina í
hendur, sér að endurgjaldslausu og
haft gagti af. Öðrum sem áhuga
hafa býðst bókin til kaups á 700 kr.
hjá Fiskifélaginu og Fiskifélagsútgáf-
unni.
Líkt og síðastliðin tvö ár er ætlunin
með útgáfu bókarinnar að á einum
stað liggi fyrir góðar upplýsingar um
helstu lög og reglugerðir varðandi
veiðar, sem og aðgengilegur listi yfir
úthlutaðar aflaheimildir íslenskra
skipa og báta. Þannig eru í Kvótabók-
inni 1999/2000 reglugerðir og lög um
veiðar í atvinnuskyni innan landhelgi,
sem og veiðar úr stofnum utan land-
helgi, s.s. á Flæmingjagrunni. Með það
að leiðarljósi að notendur bókarinnar
vildu hafa hana sem fyrirferðar-
minnsta, en jafnframt notadrýgsta,
var ákveðið að birta eingöngu lög og
reglugerðir, úthlutanir á einstök skip
og báta, sem og helstu yfirlitstöflur.
Eftir sem áður er notendum bent á
Sjómannaalmanak Fiskifélagsins, þar
sem eru fyllri upplýsingar og laga-
greinar varðandi sjósókn, úthlutaðar
aflaheimildir, ásamt öðru sem að
gagni gæti komið. Einnig hefur Fiski-
félagi íslands og nú Hagstofa íslands
gefið út Útveg á hverju ári, þar sem
finna má ítarlegar tölulegar upplýsing-
ar um aflamagn, verð og verkun.
Nokkrar nýjungar eru í þessari
Kvótabók. Má þar fyrst nefna að á um-
liðnum árum hafa sífellt fleiri fiskteg-
undir verið „kvótasettar". Þar að auki
hefur sjávarútvegsráðuneytið úthlutað
þorskígildum til jöfnunnar og nú síð-
ast einnig til skipa sem þurftu að sæta
skerðingu á innfjarðarrækjukvóta. Til
að gefa raunsanna mynd af kvótaút-
hlutun einstakra báta töldum við ein-
sýnt að þessar aukaúthlutanir eða
„jafnanir" þyrftu að koma fram í
heildaraflamarki, sem og í einstökum
tegundum á skip.
Smám saman hefur því fjölgað
dálkunum af úthlutuðum tegundum
og jöfnunarúthlutunum og að end-
ingu var alfarið ómögulegt að ná
hverju skipi í eina línu. Því var ákveð-
ið að skipta hverju skipi/bát í tvær lín-
ur, þ.e. fyrri og síðari hluti úthlutunar
hvers skips er í tvennu lagi, en á sömu
opnu. Skýrist þetta frekar við uppflett-
ingu í bókinni.
Þetta þótti taka því fram að láta
Nýjar bækur
um sjávarútveg
notendur fletta úthlutun hvers skips í
mörgum töflum, og að hvergi kæmi
fram raunveruleg heildarúthlutun, þ.e.
úthlutun með jöfnun. Gagnlegt væri
að heyra álit notenda á þessu, eða
ábendingar um aðra lausn á vandan-
um.
i annan stað hefur einnig fjölgað
úthlutunum eða „kvótategundum" úr
deilistofnum utan fiskveiðilögsögunn-
ar. Þessar úthlutanir eru nú allar tekn-
ar saman í eina töflu.
Vonumst við til að þessar nýjungar
verði til að auka notagildi Kvótabókar-
innar.
Band bókarinnar olli nokkrum
heilabrotum, réðu þar notagildi og
styrkur. Bókin kemst í brjóstvasa og er
bundin, en ekki aðeins límd. Hún á
því að þola töluverða notkun og álag,
án þess að losna í sundur.
Bókina höfum við nú lagt í dóm
lesenda og eru allar athugasemdir við
þá nýbreytni sem bryddað var upp á
vel þegnar, svo og annað sem menn
vilja gera athugasemdir við. Við bend-
um á tölvupóstfangið, fi@fiskifelag.is
eða póstfangið okkar sem er:
Fiskifélagsútgáfan
Skipholti 17
105 Reykjavík
Nýjar frá Máli og ineiniiiigu
Fyrrum skipherra
í sviptingum á
sjávavarslóð
Árið 1958 steig ungur stýrimaður
um borð í Maríu Júlíu, eitt af varð-
skipum Landgæslunnar, og varla
hafði hann lært að rata um skipið
þegar til átaka kom við Breta og
Þjóðverja um 12 mílna landhelgi
íslendinga. Fyrsta landhelgisstríð
okkar var hafið. í tæp fjörutíu ár
starfaði Höskuldur Skarphéðinsson
í flota Landhelgisgæslunnar, í lofti
og á sjó.
Höskuldur Skarphéðinsson er
gæddur leiftrandi frásagnargáfu sem
nýtur sín vel í minningum hans. Hér
birtast atburðirnir ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum - hvort sem hann
lýsir björgunarferðum á úthöfum
eða átökum Landhelgisgæslunnar
við herskip hennar hátignar.
Sjórán og siglingar
í þessari bók segir Helgi Þorláks-
son frá enskum sæförum og sjóræn-
ingjum, duggurum, kaupmönnum og
fálkaföngurum, dönskum valds-
mönnum, íslenskum klerkum, ráða-
mönnum og alþýðu manna. Hann
skrifar lifandi og skemmtilega og
kemur víða við á íslandi, en sögu-
sviðið spannar líka Færeyjar, Bret-
land og Irland, Finnmörku, Eyrar-
sund, Miðjarðarhaf, Marokkó og
miðin við Nýfundnaland.
Æcm 31